Lýsing á aðgerð
Jafnrétti, menning og listir.
Unnið verði að því að tryggja jöfn kynjahlutföll meðal listamanna þegar kemur að framboði á menningu og listum á vegum ríkisins og eftirspurn (menningarneyslu). Helstu aðgerðir verði m.a. eftirfarandi:
- Menningarstofnanir á vegum ríkisins haldi kynjabókhald um menningar- og listviðburði sem þær standa fyrir. Kynjabókhaldið nái til úthlutana úr opinberum sjóðum eftir því sem við á. Kynjabókhald sem nái til menningarneyslu verði aðgengilegt á vefsvæðum stofnananna ásamt samanburði milli ára.
- Umsjónaraðilar sjóða á sviði menningar og lista birti á vefsíðum sínum greiningu upplýsinga um úthlutanir er sýni kyn, fjármagn, búsetu og árangurshlutfall umsókna. Framsetning upplýsinga og greining á helstu niðurstöðum verði bætt og helstu niðurstöðum ásamt samanburði milli ára verði miðlað í texta á viðkomandi vefsvæðum.
Tímaáætlun: 2020–2023.
Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr.
Ábyrgð: Mennta- og menningarmálaráðuneytið (nú menningar- og viðskiptaráðuneytið).
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður einkum markmið 4.7, 5.1, 5.5, 10.3 og 16.6.
Unnið er að því að tryggja jöfn kynjahlutföll meðal listamanna þegar kemur að framboði á menningu og listum á vegum ríkisins og eftirspurn (menningarneyslu).
Ráðuneytið hefur óskað eftir kyngreindum upplýsingum vegna umsókna og styrkveitinga úr sjóðum á vegum ráðuneytisins. Jafnframt hefur verið sendur út spurningalisti á fulltrúa sjóðanna vegna umsókna og styrkúthlutana.
Ráðuneytið leggur áherslu á að samræma verklag og aðferðir við öflun og utanumhald upplýsinga um umsóknir og úthlutanir styrkja þeirra sjóða sem eru á vegum ráðuneytisins. Markmiðið er að bæta gagnaöflun og gera upplýsingarnar aðgengilegar, svo ljóst sé hvaða gögnum er verið að safna, og hvernig
Verkefnið er komið vel á veg.
Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið