Hoppa yfir valmynd

Verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð

Hlutverk verkefnisstjórnar kynjaðrar fjárlagagerðar er að fylgja eftir fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð auk þess sem hún fylgir eftir vinnu við jafnréttismat á stjórnarfrumvörpum í samstarfi við forsætisráðuneytið. Verkefnisstjórnin er skipuð fulltrúum allra ráðuneyta og leidd af fjármála- og efnahagsráðuneyti. Fulltrúar í verkefnisstjórninni eru lykilaðilar við framkvæmd kynjaðrar fjárlagagerðar í hverju ráðuneyti.

Hlutverk og skipan verkefnisstjórnarinnar hefur tekið breytingum og þróast töluvert á undanförnum árum. Verkefnisstjórn um stefnumótun og undirbúning að kynjaðri hagstjórn var fyrst skipuð árið 2009. Þá sátu í henni fulltrúar frá velferðarráðuneytinu, Jafnréttisstofu og RIKK - Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum auk fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytis sem jafnframt fór með formennsku. Með skipan verkefnisstjórnarinnar var í fyrsta sinn gerð tilraun til að innleiða kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð með heildstæðum hætti hér á landi.

Nefndarmenn:

  • Marta Birna Baldursdóttir, formaður, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti
  • Dröfn Gunnarsdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneyti
  • Einar Beinteinn Árnason, tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðuneyti
  • Gísli Rúnar Pálmason, tilnefndur af háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti
  • Guðmann Ólafsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti
  • Jóhanna Lind Elíasdóttir, tilnefnd af félags- og vinnumarkaðsráðuneyti
  • Magnús Óskar Hafsteinsson, tilnefndur af matvælaráðuneyti
  • Marsilía Dröfn Sigurðardóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti
  • Sigurlaug Ýr Gísladóttir, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Sunna Diðriksdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti
  • Þ. Auður Ævarr Sveinsdóttir, tilnefnd af umhverfis,- orku og loftlagsráðuneyti
  • Þórdís Steinsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti
  • Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, tilnefnd af utanríkisráðuneyti

Skipuð: 10.05.2022

Tímabundnar nefndir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum