Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Þriðji morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+

50+ verkefnisstjórn til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaðiAtvinnurekendur, stjórnendur, rannsakendur, stjórnmálamenn og áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið!

Sveigjanleg starfslok - ávinningur allra

Dagskrá 15. nóvember kl. 8:30-10:00

  1. Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins, fjallar um Evrópuverkefni sem Starfsafl tekur þátt í og miðar að því að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði.
  2. Séra Bernharður Guðmundsson fulltrúi Öldrunarráðs Íslands í norrænni nefnd - Ældre i arbejdslivet - fjallar um breytilegar þarfir og aðstæður fólks á vinnumarkaði.
  3. Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM og nefndarmaður í Verkefnisstjórn 50+ fjallar um erlend verkefni sem unnin hafa verið með þennan aldurshóp í fyrirtækjum.

Fundarstjóri: Gunnar Kristjánsson, formaður verkefnisstjórnar 50+

  • Hver er ávinningur fyrirtækja af atvinnuþátttöku eldra fólks?
  • Standa fyrirtæki á Íslandi fyrir sértækum aðgerðum í því skyni að halda lengur í fólk á vinnumarkaði?
  • Skiptir sveigjanleikinn máli?
  • Hvernig geta fyrirtækin nýtt mentora - lærimeistara /félagsvini- í sína þágu?

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Annar fundur af þremur verður á Grand Hóteli Reykjavík, Háteigi (salur á 4. hæð) þann 15. nóvember næstkomandi klukkan 8.30-10.00. Morgunverður verður framreiddur frá klukkan 8.00.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum