Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fólksbifreiðum með díselvélar fjölgar ört

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 18. janúar 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Eitt af markmiðum lagasetningar um olíu- og kílómetragjald var að auka hlut bifreiða með díselvélar í bifreiðaflotanum af umhverfisástæðum.

Lögin tóku gildi um mitt ár 2005 og síðan þá hefur hlutfall bifreiða með díselvélar aukist eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Með lögunum var fyrirkomulag skattlagningar á díselolíu einfaldað en jafnframt er olíugjaldið áfram lægra en samsvarandi skattlagning á bensín.

Samkvæmt upplýsingum á vef Umferðarstofu voru rétt tæplega 20.000 fólksbifreiðar fluttar til landsins árið 2006. Þar af voru 4.600 knúnar með díselvélum en það er rétt tæpur fjórðungur innfluttra fólksbifreiða það ár. Sama ár voru afskráðar 9.300 fólksbifreiðar sem þýðir að fyrir hverjar tvær sem fluttir voru inn til landsins fór ein af skrá.

Yfirgnæfandi fjöldi afskráðra fólksbifreiða eru með bensínvél og því eykst hlutfall bifreiða með díselvél í bifreiðaflotanum. Þegar fyrirkomulagi skattlagningar á olíu var breytt var búist við að hlutdeild bifreiða með díselvélar í innflutningi lítilla fólksbifreiða yrði komin í 45% árið 2010. Í fyrra má rekja 45% aukningar bifreiðaflotans til bifreiða með díselvél. Ef þessi þróun heldur áfram, eins og búist er við, mun markmið lagasetningarinnar nást.

Aukin hlutdeild bifreiða með díselvélar leiðir til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á hvern ekinn kílómetra. Þótt fjölgun bifreiða auki heildarlosun bifreiðaflotans í landinu er áætlað að breytt samsetning hans hafi minnkað meðaleyðslu (og þar með losun) um 0,6% árið 2006, einu ári eftir að fyrirkomulagi á skattlagningu díselolíu var breytt.

Hlutfall fólksbifreiða með díselvélar í bifreiðaflotanum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum