Hoppa yfir valmynd
7. mars 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs í janúar 2006

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins – þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Mánaðaruppgjör ríkissjóðs fyrir janúarmánuð liggur nú fyrir.

Þar sem uppgjörið er á greiðslugrunni og nær aðeins til eins mánaðar er samanburður við fyrra ár háður óvissu vegna tilfærslu milli mánaða og á það jafnt við um tekjur og útgjöld. Þetta getur valdið óeðlilega miklum sveiflum í einstaka liðum.

Samkvæmt uppgjörinu var breyting á handbæru fé frá rekstri jákvæð um 13,9 ma.kr. í mánuðinum sem er 11,3 ma.kr. hagstæðari útkoma en í janúar í fyrra. Þá er útkoman 9,9 ma.kr. hagstæðari en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga. Tekjur reyndust 11,2 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 0,2 ma.kr. Hreyfingar á viðskiptareikningum urðu 0,2 ma.kr. hagstæðari. Hreinn lánsfjárjöfnuður var jákvæður um 12,8 ma.kr. sem er 7 ma.kr. betra en á sama tíma í fyrra. Hagstæðari staða nú skýrist alfarið af jákvæðari tekjujöfnuði en í fyrra.

Heildartekjur ríkissjóðs námu 41,1 ma.kr. í janúar og hækkuðu um 11,2 ma.kr. frá fyrra ári, eða 37,6% en að teknu tilliti til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila nemur hækkunin um 27%. Þar af námu skatttekjur og tryggingagjöld um 36 ma.kr. sem er um 26% hækkun að nafngildi frá síðasta ári. Á sama tíma hefur almennt verðlag hækkað um 4,4% þannig að skatttekjur og tryggingagjöld hækkuðu að raungildi um 21%.

Skattar á tekjur og hagnað námu 25,4 ma.kr. og hækkuðu um tæplega 9 ma.kr. frá síðasta ári eða um 54,3%. Munar þar mest um aukna innheimtu fjármagnstekjuskatts en í janúar nam hún 13,5 ma.kr. sem er 53% aukning frá sama tíma árið á undan. Jafnframt skýrist 3,7 ma.kr. hækkun tekjuskatts lögaðila að mestu af áðurnefndri tilfærslu milli mánaða. Innheimt tryggingagjöld jukust einnig frá fyrra ári, eða um 15% en launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 8,3% á sama tímabili. Innheimta eignarskatta nam 0,8 ma.kr. sem er aukning um 11,2%. Þar af námu stimpilgjöld ríflega 0,5 ma.kr. en innheimta þeirra hefur hins vegar dregist saman frá fyrra ári um 27,4% sem gefur til kynna að dregið hefur úr veltu á fasteignamarkaði og skuldbreytingu lána.

Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar en samanlagt hafa almennir veltuskattar hækkað um 14,2% frá fyrra ári. Þannig hafa tekjur af virðisaukaskatti aukist um 9,4% sem jafngildir 4,8% raunhækkun. Af öðrum óbeinum sköttum má nefna að vörugjöld af ökutækjum skiluðu ríflega fimmtungi meiri tekjum en á sama tíma í fyrra sem er umtalsverð aukning en þó mun minni en hefur verið undanfarin ár.

Greidd gjöld janúarmánaðar eru 25,5 ma.kr. króna og hækka um 0,2 ma.kr. frá fyrra ári, eða um 0,7%. Aukningin kemur nær alfarið fram í greiðslum til félagsmála, þ.e. til almannatrygginga, fræðslu- og menningarmála, heilbrigðismála og annarra velferðarmála. Gjöld málaflokksins í heild vega 72% af útgjöldum janúarmánaðar og hækka um 1,7 ma.kr., eða 10% milli ára. Þar af eru 0,7 ma.kr. til heilbrigðismála og 0,5 ma.kr. til fræðslumála. Greiðslur til atvinnumála lækka lítillega milli ára en vaxtagjöld lækka um 1,6 ma.kr. og vega þar með upp hækkun félagsmála. Í janúar í fyrra var stór flokkur spariskírteina forinnleystur sem leiddi til 1,2 ma.kr. vaxtagjalda. Þá leiddi afborgun af erlendu láni til 0,9 ma.kr. vaxtagreiðslna í fyrra.

Lántökur námu aðeins 1,5 ma.kr. á móti 11,6 milljörðum í fyrra. Að auki voru stutt innlend lán greidd niður um 4 ma.kr. Eiginfjárframlag ríkisins í Nýsköpunarsjóði var aukið um 1 ma.kr. og loks voru 0,3 ma.kr. greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs. Handbært fé ríkissjóðs jókst um 10 ma.kr. í janúar 2006.

Mánaðarlegt uppgjör ríkissjóðs er nú birt með nokkuð öðru sniði en verið hefur. Flokkun tekna ríkissjóðs hefur verið endurskoðuð með hliðsjón af nýjum staðli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í stað eldri útgáfu. Hin nýja tekjuflokkun birtist fyrst síðastliðið haust í ríkisreikningi fyrir árið 2004 og í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2006 til kynningar. Nánari upplýsingar um hina nýju flokkun má sjá í greininni Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar 2006.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum