Hoppa yfir valmynd
9. júní 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Auglýsing um viðurkenningu fyrir meistaraprófsritgerð

Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að veita tvær viðurkenningar, að fjárhæð 250.000 krónur hvora, fyrir lokaverkefni á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði við innlendar eða erlendar menntastofnanir. Viðurkenningarnar eru fyrir verkefni sem unnin eru á skólaárinu 2004/2005. Skilyrði fyrir viðurkenningu er að viðfangsefnið sé á sviði efnahags- og ríkisfjármála. Sérstök dómnefnd leggur mat á þær umsóknir sem berast og ákveður viðurkenningu.

Umsóknum skal skilað til efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eða á meðfylgjandi netföng fyrir 3. október nk.

Umsóknareyðublöð er hægt að sækja á heimasíðu ráðuneytisins, www.fjarmalaraduneyti.is  eða í afgreiðslu þess í Arnarhvoli. Með umsókn þarf að fylgja eintak af verkefninu. Niðurstaða um styrkveitingu verður tilkynnt þann 4. nóvember.

 

Nánari upplýsingar veita:

Arna Sigurðardóttir, arna.sigurdardottir@fjr.stjr.is

Fjóla Agnarsdóttir, fjola.agnarsdott[email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum