Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2004 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samkomulag ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana.

Fjármálaráðherra og borgarstjóri undirrita samkomulagið um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana - sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar
Fjármálaráðherra og borgarstjóri undirrita samkomulagið um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana - sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar

 

 

 

 

Fjármálaráðuneytið

Reykjavíkurborg - logo

Sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, og Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samkomulag um uppgjör og ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum vegna starfsfólks samrekstrarstofnana ríkis og Reykjavíkurborgar. Um er að ræða starfsfólk stofnana á borð við Borgarspítalann, Gjaldheimtuna í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Samkvæmt samkomulaginu greiðir ríkissjóður borgarsjóði um 2,9 milljarða króna, en jafnframt er lagður grunnur að árlegum uppgjörum milli aðila vegna reksturs sem ríki og Reykjavíkurborg standa enn sameiginlega að.

Vinnuhópur á vegum samningsaðila hefur farið yfir þær skuldbindingar sem safnast hafa upp hjá umræddum lífeyrissjóðum vegna sameiginlegra verkefna á undanförnum áratugum. Var um mjög viðamikið verkefni að ræða þar sem samningsaðilar hafa átt víðtækt samstarf um rekstur stofnana á undanförnum áratugum, einkum á sviði heilbrigðis-, mennta- og félagsmála. Er hér um að ræða skuldbindingar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga og Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar.

Samkvæmt samkomulaginu yfirtekur ríkissjóður skuldbindingar Reykjavíkurborgar gagnvart Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga og Reykjavíkurborg yfirtekur skuldbindingar ríkissjóðs gagnvart Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar miðað við stöðu þeirra í árslok 2002. Mismunurinn á yfirteknum skuldbindingum er gerður upp milli samningsaðila. Jafnframt er í samkomulaginu kveðið á um uppgjör á áföllnum og greiddum kröfum vegna þeirra sem byrjaðir eru töku lífeyris. Þá er með samkomulaginu gert ráð fyrir að nýjar skuldbindingar, sem falla til á ári hverju vegna áframhaldandi verkefna, skuli framvegis gerðar upp árlega milli aðila.

Niðurstaða þessa uppgjörs var sú að uppsafnaðar skuldbindingar ríkissjóðs til ársloka 2002 voru 2.858 mkr. hærri en skuldbindingar Reykjavíkurborgar. Ríkissjóður greiddi þennan mismun við undirritun samkomulagsins með spariskírteinum ríkissjóðs (RIKS 15) miðað við 3,5% ávöxtunarkröfu.

Uppgjör þetta hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs í ár þar sem áður var búið að færa umræddar lífeyrisskuldbindingar til gjalda í ríkisreikningi. Þá hafði einnig verið gerð grein fyrir þessum óuppgerðu skuldbindingum í reikningum borgarsjóðs.

 

 

Reykjavík, 5. apríl 2004

Fjármálaráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík

 

Fjármálaráðherra og borgarstjóri undirrita samkomulagið um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana - sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar

Fjármálaráðherra og borgarstjóri undirrita samkomulagið

Fjármálaráðherra og borgarstjóri ásamt nokkrum þeim starfsmönnum sem komu að gerð samkomulagsins

Fjármálaráðherra og borgarstjóri ásamt nokkrum þeim starfsmönnum sem komu að gerð samkomulagsins

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum