Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna umfjöllunar um fjárheimildir Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða

Vegna umfjöllunar um fjárheimildir Framkvæmdasjóðs ferðamannstaða vill fjármála- og efnahagsráðuneytið taka fram að ríkisstjórnin ákvað fyrr í sumar að brýnt væri að veita  fjármunum til nauðsynlegra verkefna til að standa að framkvæmdum til auka öryggi ferðafólks og varna skemmdum á ferðamannastöðum. Í samræmi við ákvæði fjárreiðulaga hyggst fjármála- og efnahagsráðherra leita formlegrar fjárheimildar í frumvarpi til fjáraukalaga þessa árs.  Ráðuneytið mun á næstu dögum jafnframt upplýsa fjárlaganefnd Alþingis frekar um málið eins og venja er í tilvikum sem þessum. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum