Hoppa yfir valmynd
8. maí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Framlög ríkisins til stjórnmálasamtaka 2014

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2014.

Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum. Þá geta stjórnmálasamtök sem bjóða fram í öllum kjördæmum í kosningum til Alþingis sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði að loknum kosningum til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 3 millj.kr.  Sækja þarf um styrkinn innan þriggja mánaða eftir að kosningar fóru fram og greiðist af fyrrnefndum heimildum fjárlaga.

Greiðslur eftir alþingiskosningar árið 2013 fyrir árið 2014 koma fram í meðfylgjandi töflu. Í þeim tilfellum þar sem framboð uppfylltu skilyrði um sérstakan fjárstyrk og sóttu um hann innan tilkskilinna marka, en fengu jafnframt 2,5% atkvæða og því framlag úr ríkissjóði, dregst styrkurinn frá heildarframlagi á árinu 2014, líkt og sjá má á töflunni. 

Skipting atkvæða í Alþingiskosningunum 2013 (Upplýsingar frá Hagstofu Íslands)

Greidd atkvæði alls 193.822

Gild atkvæði alls  188.995

Auðir seðlar   4.217

Ógildir seðlar  610

Stjórnmálasamtök

Gild atkvæði % hlutfall 

Atkvæði til skiptingar

% hlutfall

Áður afgreitt m/fjárauka 2013

Afgreitt nú

Framlag vegna atkvæðafjölda

Samtals greitt 2014
Björt framtíð 15.584 8,25% 15.584 8,7% 3.000.000 22.117.737 22.117.737
Framsóknarflokkur 46.173 24,43% 46.173 25,9% 3.000.000 65.531.459 68.531.459
Sjálfstæðisflokkur   50.455 26,70% 50.455 28,3% 3.000.000 71.608.728 74.608.728
Hægri grænir 3.262 1,73% 3.000.000  
Húmanistaflokkurinn 126 0,07%  
Flokkur heimilanna 5.707 3,02% 5.707 3,2% 3.000.000 8.099.713 8.099.713
Regnboginn 2.021 1,07% 3.000.000 0
Sturla Jónsson, K-listi 222 0,12%  
Lýðræðisvaktin 4.658 2,46% 3.000.000 0
Landsbyggðarflokkurinn 326 0,17%  
Alþýðufylkingin 118 0,06%  
Samfylkingin   24.294 12,85% 24.294 13,6% 3.000.000 34.479.485 34.479.485
Dögun 5.855 3,10% 5.855 3,3% 3.000.000 8.309.763 8.309.763
Vinstrihreyfingin – grænt framboð    20.546 10,87% 20.546 11,5% 3.000.000 29.160.101 29.160.101
Píratar 9.648 5,10% 9.648 5,4% 3.000.000 13.693.014 16.693.014
ALLS: 188.995 178.262 100,0% 24.000.000 9.000.000 253.000.000 262.000.000

Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra 2006/162

 II. kafli. Framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi

 3. gr. Framlög til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði.

Árlega skal úthluta fé úr ríkissjóði til starfsemi stjórnmálasamtaka sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi eða hlotið hafa a.m.k. 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni. Fjárhæðinni skal úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn.

Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í öllum kjördæmum í kosningum til Alþingis geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 3 millj.kr. Umsóknum um fjárstyrk vegna kosningabaráttur skal beint til ráðuneytisins og skulu umsóknir berast eigi síðar en þremur mánuðum eftir að kosningar fóru fram. Umsóknum skal fylgja afrit reikninga fyrir kostnaði sem fjárstyrk er ætlað að mæta. Ráðuneytið getur sett nánari reglur um form umsókna og fylgigagna sem og um það hvaða kostnaður geti talist kostnaður við kosningabaráttu.

 4. gr. Framlög til þingflokka úr ríkissjóði.

Árlega skal úthluta fé úr ríkissjóði til starfsemi þingflokka á Alþingi samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni. Greiða skal jafna fjárhæð fyrir hvern þingmann og nefnist hún eining. Að auki skal greiða eina einingu fyrir hvern þingflokk. Því til viðbótar skal úthluta fjárhæð sem svarar tólf einingum til þingflokka þeirra stjórnmálasamtaka sem eiga ekki aðild að ríkisstjórn og skiptast þær einingar hlutfallslega milli þeirra. Forsætisnefnd Alþingis getur sett nánari reglur um greiðslur samkvæmt þessari grein.

 5. gr. Framlög til stjórnmálasamtaka frá sveitarfélögum.

Sveitarfélögum með fleiri en 500 íbúa er skylt, en öðrum sveitarfélögum heimilt, að veita stjórnmálasamtökum, sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum, fjárframlög til starfsemi sinnar. Ákvörðun um slík framlög tekur sveitarstjórn samhliða samþykkt fjárhagsáætlunar. Fjárhæðinni skal úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum