Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýsköpunarverðlaun veitt í þriðja sinn á ráðstefnu um skapandi opinbera þjónustu

Nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu verða afhent í þriðja sinn 24. janúar næstkomandi, en afhendingin fer fram á ráðstefnu um nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.

Yfir 40 verkefni voru tilnefnd til nýsköpunarverðlaunanna í ár.

Ráðstefnan sem haldin er í tengslum við verðlaunaafhendinguna hefur yfirskriftina Skapandi opinber þjónusta: Stjórnun, skilvirkni, samstarf, viðurkenning. Ráðstefnan verður á Grand hótel.

Aðalfyrirlesari er Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration, EIPA. sem ræðir aðferðir til að styðja við og styrkja nýsköpun í opinbera geiranum. Stofnunin veitir m.a. Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu, en á árinu 2013 voru um 230 verkefni frá 26 ríkjum og stofnunum ESB tilnefnd til verðlaunanna. 15 verkefni fengu sérstaka viðurkenningu, þar af voru tvö verkefni frá Íslandi.

Dagskrá ráðstefnunnar 24. janúar er eftirfarandi:

1. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra opnar fundinn og flytur ávarp.
2. Dr. Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration EIPA:  How to strengthen, recognise and promote innovation in the public sector.
3. Dr. Hilmar Bragi Janusson forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fv. framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf : Nýsköpun í opinberum rekstri - aukin skilvirkni í starfsemi stofnana.  
4. Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra: Hlutverk stjórnanda að skapa nýsköpunarmenningu hjá stofnun.
5. Afhending nýsköpunarverðlauna. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Fundarstjóri: Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Að viðburðunum standa fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag stjórnenda á stjórnsýslu- og fjármálasviðum sveitarfélaga, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannís. Samstarfsaðilar vilja með framtaki sínu draga athygli að nýsköpun og þróunarverkefnum í starfsemi hins opinbera og stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri á Íslandi.

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum