Hoppa yfir valmynd
2. desember 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vefur ríkisskattstjóra bestur

Þeir starfsmenn ríkisskattstjóra sem borið hafa hitann og þungann af vinnu við vef embættisins
Þeir starfsmenn ríkisskattstjóra sem borið hafa hitann og þungann af vinnu við vef embættisins.

Upplýsingavefur ríkisskattstjóra, rsk.is, var valinn „besti ríkisvefurinn 2013“ á ráðstefnu um upplýsingasamfélagið, sem fram fór 28. nóvember sl.

Ráðstefnan var haldin á vegum innanríkisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skýrslutæknifélags Íslands. Þar var tilkynnt hvaða opinberu vefir stofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga þættu bestir í notkun og virkni.  Alls voru kannaðir 265 vefir og mat lagt á þætti er snerta innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Jafnframt valdi sérstök dómnefnd besta vef sveitarfélags og besta ríkisvefinn fyrir árið 2013.

Upplýsingavefur ríkisskattstjóra, rsk.is, fékk hæstu einkunn en vefurinn fékk í heildina 98 stig af 100 mögulegum, þar af fullt hús stiga í þremur af fyrrgreindum fjórum flokkum.
Að auki hlaut vefur RSK viðurkenninguna: „Besti ríkisvefurinn 2013“ að mati dómnefndar, en formaður hennar var Marta Kristín Lárusdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar um vefinn segir:

„Vefurinn er uppbyggður á skipulegan hátt og tekist hefur að setja fram gríðarlega mikið magn flókinna upplýsinga á skýran og aðgengilegan hátt. Leitarvélin virkar vel og gerir upplýsingaleit auðvelda. Útlit vefsins er stílhreint, hann hefur rólegt yfirbragð og þægilegt viðmót“

Nýr vefur ríkisskattstjóra var tekinn í notkun 2. október 2012 á 50 ára afmæli stofnunarinnar. Hann er verk fjölmargra starfsmanna ríkisskattstjóra sem og starfsmanna Hugsmiðjunnar, segir í tilkynningu á vef ríkisskattstjóra vegna viðurkenningarinnar.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum