Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Forval vegna hönnunar nýrra bygginga við Landspítala

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í samræmi við heimild í lögum heimilað Nýjum Landspítala ohf. að auglýsa forval bjóðenda vegna fullnaðarhönnunar á byggingum nýs Landspítala við Hringbraut.

Frá og með þriðjudeginum 23. apríl auglýsir Nýr Landspítali ohf. eftir umsækjendum til að taka þátt í útboði á hönnun nýrra bygginga sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Um er að ræða opið forval bjóðenda auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Útboðin verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.

Fullnaðarhönnun heildarverkefnisins er skipt upp í fjögur aðskilin hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000 m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús og um 4.000 m² sjúkrahótel.

Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda og öllum bjóðendum sem uppfylla kröfur forvalsgagna og standast þannig forval, er boðið að taka þátt í lokuðum aðskildum hönnunarútboðum fyrir hverja byggingu fyrir sig. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvalinu.

Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönnun muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir.
 
Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa frá og með 23. apríl.  Kynningarfundur fyrir væntanlega þátttakendur í forvali verður í Hringsal Barnaspítala Hringsins þriðjudaginn 14. maí nk. kl 14.00 – 16.00.

Upplýsingar á vef Nýs Landspítala

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum