Hoppa yfir valmynd
26. september 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skattabyrði hinna tekjulægri hefur lækkað

Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um skattbyrði.

Viðtalinu fylgir línurit þar sem sýnt er að skattbyrði hafi vaxið hjá öllum tekjuhópum frá árinu 2007. Þetta línurit og þeir útreikningar sem það byggir á eru alrangir enda munu hinir tekjulægri að minnsta kosti ekki kannast við það sem þar er verið að sýna.

Línuritið sýnir skattbyrði eftir tekjum fyrir árið 2012 annars vegar og árið 2007 hins vegar.  Línan um skattbyrði ársins í ár er rétt og engar athugasemdir við hana. Það er útreikningurinn fyrir árið 2007 sem er meingallaður. Hann er gerður þannig að í stað þess að reikna skattbyrði miðað við skatthlutfall ársins 2007 og þann persónuafslátt sem þá var í gildi hefur sú tala verið færð upp til verðlags dagsins í dag með vísitölu neysluverðs. Þannig greiddi enginn maður skatt árið 2007. Línuritið hér fyrir neðan sýnir skattbyrði þessara tveggja ára eins og hún var í raun og veru:

Skattbyrði í staðgreiðslu (tekjuskattur og útsvar) 2007 og 2012
 
Þarna sést svo ekki verður um villst að skattbyrði fólks með tekjur allt að um 500 þúsund krónur á mánuði er lægri nú af hverri krónu í tekjur en hún var árið 2007 og munar mestu hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Skattbyrðin hefur vaxið hjá þeim sem hafa hærri tekjur enda hefur það verið ætlun ríkisstjórnarinnar að nota skattkerfið til að jafna ráðstöfunartekjurnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum