Hoppa yfir valmynd
30. mars 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2012 – 2015

Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2012 – 2015. Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.

Í stefnunni er lýst núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við framkvæmd lánamála. Fjármálaráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli bankans og fjármálaráðuneytisins.

Stefna í lánamálum er nú birt öðru sinni. Tvær breytingar hafa verið gerðar á markmiðum og viðmiðum við stýringu lánamála frá fyrri útgáfu. Annars vegar er viðmiðunarreglum um samsetningu lánasafns ríkissjóðs breytt lítillega. Hins vegar er gerð sú breyting á markmiði um endanlega stærð útgáfuflokka ríkisbréfa að þegar flokkur er eingöngu gefinn út til 2 ára verði endanleg stærð að lágmarki 15 ma.kr. Að öðru leyti er markmið um endanlega stærð flokka ríkisbréfa óbreytt.

Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:

  • Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu.
  • Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið.
  • Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
  • Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika.
  • Stefnan verður uppfærð og endurskoðuð árlega.

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði 4 ár að lágmarki.

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.

Nánari upplýsingar veita;
Ingvar H. Ragnarsson, sérfræðingur á fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, ingvar.ragnarsson hjá fjr.stjr.is og
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, rosa.bjork.brynjolfsdottir hjá fjr.stjr.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum