Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breyting á lögum um stimpilgjald

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 13. nóvember 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um stimpilgjald.

Er það sett fram í ljósi þess ástands sem nú ríkir á fjármálamörkuðum og tilmæla yfirvalda til banka og sparisjóða um að aðstoða fólk sem kynni að lenda í greiðsluerfiðleikum vegna hækkunar fasteignalána, sem rekja má til lækkunar krónu og verðbólguáhrifa.

Með frumvarpinu er lagt til að bráðabirgðaákvæði bætist við lögin þess efnis að tímabundið verði fellt niður stimpilgjald. Annars vegar vegna skilmálabreytinga á fasteignaveðskuldabréfum, sem útgefin hafa verið af einstaklingum. Hins vegar vegna nýrra veðskuldabréfa sem gefin eru út vegna vanskila á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga.

Í framkvæmd er vanskilum ýmist bætt við höfuðstól hins upprunalega fasteignaveðskuldabréfs með skilmálabreytingu eða útgáfu sérstaks nýs veðskuldabréfs í tengslum við hið fyrra. Í báðum tilvikum er það skilyrði fyrir undanþágu stimpilgjalds samkvæmt frumvarpinu að sömu aðilar séu útgefendur að hinu nýja skjali og eru jafnframt kröfuhafi og skuldari samkvæmt viðkomandi fasteignaveðskuldabréfi sem hið nýja skjal nær til. Getur það jafnt náð til upphaflegra aðila að viðkomandi fasteignaveðskuldabréfi sem og aðila sem tekið hafa að fullu yfir skyldur upphaflegra aðila. Jafnframt er það skilyrði að hið nýja skjal sé gefið út vegna tiltekins áður útgefins fasteignaveðskuldabréfs og það vísi beint í það.

Tillaga frumvarpsins er ekki talin leiða til beinna útgjalda fyrir ríkissjóð, en ljóst er að tekjur ríkissjóðs af stimpilgjaldi munu minnka eitthvað verði frumvarpið að lögum. Tekið skal fram að ekki var í forsendum tekjuáætlunar fjárlaga fyrir árið 2008 reiknað með sérstökum tekjum af stimpilgjaldi vegna skilmálabreytinga við aðstæður eins og nú hafa skapast.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum