Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Rekstur ríkissjóðs janúar-september 2008

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 13. nóvember 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Uppgjör ríkissjóðs eftir fyrstu níu mánuði ársins 2008 liggur nú fyrir.

Heildargjöld tímabilsins námu 318,8 milljörðum króna, sem er 3,7 milljörðum króna undir áætlun, en fjárlög gerðu ráð fyrir að heildarútgjöld yrðu 322,5 milljarðar króna.

Heildarútgjöld ríkissjóðs skiptast í fjóra flokka eftir eðli þeirra. Rekstur stofnana er 468 milljónum króna yfir fjárheimildum og er heildarkostnaður 144,9 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Undir rekstur stofnana fellur allur venjulegur rekstur stofnana á vegum ríkisins. Rekstrartilfærslur eru ýmis konar styrkir og bótagreiðslur sem greiddir eru úr ríkissjóði. Framlög til þessa málaliðar námu 132,8 milljörðum króna á tímabilinu og eru greiðslur 4,1 milljarði yfir heimildum. Munar þar mestu að útgjöld til lífeyristrygginga hafa verið meiri en gert var ráð fyrir. Útgjöld til viðhalds- og stofnkostnaðar nema 27,4 milljörðum króna og eru 10,6 milljörðum króna innan ramma. Þá eru vaxtagjöld ríkissjóðs 2,3 milljörðum yfir áætlun og námu 13,7 milljörðum króna á tímabilinu.

Heildarútgjöld ríkissjóðs

M.kr.

Liður
Gjöld
Áætlun
Frávik
Hlutfall %
Rekstrargjöld
144.880
144.412
-468
-0,3
Rekstrartilfærslur
132.823
128.713
-4.110
-3,2
Vaxtagjöld
13.713
11.394
-2.319
-20,4
Viðhald og stofnkostnaður
27.422
37.977
10.556
27,8
Samtals
318.838
322.496
3.659
1,1

Fjármálaráðuneytið hefur eftirlits- og upplýsingaskyldu gagnvart ríkisstjórn og Alþingi um framkvæmd fjárlaga og skal ársfjórðungslega gerð grein fyrir stöðu einstakra fjárlagaliða. Ráðuneytin ásamt forstöðumönnum stofnana bera hvert um sig ábyrgð á rekstri sinna verkefna. Í reglugerð er kveðið á um skyldur ráðuneyta og forstöðumanna til að bregðast við ef útgjöld verða meira en 4% umfram heimildir á hverjum tímapunkti. Grípa skal þá til aðgerða þannig að rekstur verði í samræmi við heimildir fjárlaga.

Samkvæmt uppgjöri bókhalds eru 106 fjárlagaliðir meira en 4% umfram fjárheimildir eftir fyrstu níu mánuði ársins. Þetta er fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 116 fjárlagaliðir voru með meiri halla en sem nam 4% af heimildum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum