Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tekjur aldraðra

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 10. apríl 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á tekjum landsmanna.

Tekjur og ráðstöfunartekjur hafa vaxið og kaupmáttur ráððstöfunartekna einnig. Þá hefur samsetning tekna tekið miklum breyttingum, aðallega vegna þess að hlutur fjármagnstekna, beint og óbeint, hefur aukist. Aldraðir hafa ekki farið varhluta af þessari þróun. Hér á eftir verður fjallað um tekjur aldraðra hjóna og teljast þær nokkuð dæmigerðar fyrir aldraða.

Árið 1995 voru meðaltekjur hjóna sem voru eldri en sjötug um 30% lægri en meðaltekjur allra hjóna, en það er í samræmi við alþjóðlega þróun á vinnumarkaði að heildartekjur fólks lækki eftir miðjan aldur. Þegar uppsveiflan fram að aldamótum gekk yfir náðu hinir eldri ekki að halda fyllilega í við þá yngri og tekjurnar urðu 41% lægri en allra hjóna árið 2000. Síðan þá hefur dregið saman með hverju ári og árið 2006 var hópurinn með tekjur sem voru 37,7% lægri en allra hjóna.

Hlutfallsleg skipting heildartekna hjóna 70 ára og eldri eftir uppruna

Samsetning tekna hjá eldra fólki hefur tekið miklum breytingum og þær breytingar munu halda áfram á næstu árum. Hlutur fjármagnstekna hefur þannig vaxið úr því að vera 8% af tekjum árið 1995 í að vera orðinn 39% árið 2006. Allan tímann sem hér er til athugunar hafa fjármagnstekjur þessa hóps verið hærri en meðalfjármagnstekjur allra hjóna.

Hlutur atvinnutekna, sem er uppistaðan af því sem á myndinni er í flokknum aðrar tekjur hefur farið stöðugt minnkandi á þessu tímabili enda fækkar í þeim hópi sem heldur áfram störfum eftir 70 ára aldur til að afla nauðsynlegra ráðstöfunartekna. Eftir árið 2000 hafa lífeyrissjóðirnir haldið sínum hlut nokkurn veginn í tekjumynd þessa hóps og það hefur Tryggingastofnun einnig gert þótt vaxandi tekjur hópsins hafi leitt til þess að hluturinn hefur rýrnað örlítið. Að sjálfsögu er það svo með aldraða eins og aðra landsmenn að fjármagnstekjum er skipt misjafnar á milli manna en öðrum tekjum og sumir aldraðir bera lítið úr býtum meðan aðrir hafa góða afkomu.

Eftir því sem lífeyriskerfi landsmanna byggist upp fjölgar í þeim hópi aldraðra sem hefur góðar og öruggar tekjur. Breytingar á skattkerfinu á undanförnum árum hafa auk þess auðveldað þeim sem það vilja að halda áfram störfum án þess að það bitni á þeim stuðningi sem þeir njóta frá samfélaginu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum