Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vöruviðskiptin í mars

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 3. apríl 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fluttar inn vörur í mars fyrir um 36,4 ma.kr. (fob) sem er 14% aukning frá fyrri mánuði en gengislækkun krónunnar í mánuðinum hefur mikil áhrif þar sem innfluttar vörur eru nú mun dýrari en áður.

Fluttar voru út vörur fyrir 31,2 ma.kr. sem er töluverð aukning frá því í febrúar þegar útflutningurinn nam um 20,9 ma.kr. Vöruskiptahallinn í mars var því 5,3 ma.kr. sem er mikill bati frá fyrri mánuði þegar hallinn nam 12,5 ma.kr.

Útflutningur sjávarafurða var með mesta móti í mars og ljóst að gengislækkun krónunnar mun reynast mikil búbót fyrir sjávarútveginn sem og aðrar útflutningsgreinar. Þá er útflutningur áls loks að taka við sér. Aukningin í mars er rúmlega 60% meiri en á sama mánuði í fyrra. Þau tæknilegu vandamál sem tafið hafa aukningu framleiðslu Alcoa Fjarðaáls að undanförnu er nú að mestu leyst og því má gera ráð fyrir að álútflutningur verði mun meiri þegar framleiðslugeta Fjarðaáls kemst á fullt stig innan skamms.

Þegar rýnt er í undirliði innflutningsins ber fyrst að nefna að innflutningur fjárfestingarvara (annarra en flutningatækja) er mjög hár í mánuðinum og hefur ekki verið hærri síðan í júlí 2006. Innflutningur hrá- og rekstrarvara er einnig hár í mars og hefur ekki verið hærri í einum mánuði, að desember sl. undanskildum.

Aukning í innflutningi neysluvara í mars þarf ekki að koma á óvart og er í samræmi við svokölluð J-kúrfu áhrif. Samkvæmt þeim eykst verðmæti innflutnings í kjölfar gengislækkunar til að byrja með, en þegar fram í sækir hefur hærra verð áhrif til að draga úr magni innflutnings. Á næstu misserum má búast við að innflutningur varanlegra og hálf-varanlegra neysluvara dragist saman að magni til samfara hækkandi verði en að innflutningsverðmæti nauðsynjavara eins og matvöru aukist. Því er líklegt að vöruskiptahallinn dragist saman á komandi mánuðum og snúist í afgang þegar líða tekur á árið.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum