Drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup til umsagnar
Til umsagnar eru nú hjá fjármálaráðuneytinu drög að frumvarpi til breytinga á lögum um opinber innkaup nr. 84/2007. Stefnt er að því að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi haustið 2010.
Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/66/EB þar sem kveðið er á um meginreglur er skylda ríki til að koma á fót skilvirkri og skjótri kærumálsmeðferð á sviði opinberra innkaupa, tryggja jafnræði o.fl.
Helstu breytingar og nýmæli sem eru ráðgerð eru eftirfarandi:
Óvirkni samninga. Það mat sem tilskipunin leyfir um hvort beitt er óvirkni og/eða öðrum viðurlögum er eftirlátið kærunefnd útboðsmála.
Úrskurður um óvirkni samnings hefur þau áhrif að réttindi og skyldur samkvæmt aðalefni samnings falla niður frá upphafi.
Frestur vegna kröfu um óvirkni verður 30 dagar og verði jafnframt hinn almenni kærufrestur í stað fjögurra vikna, en að öðru leyti verði almenna reglan óbreytt.
Fylgt er þeirri stefnu að fela kærunefnd mat á því hvernig öðrum viðurlögum er hagað, þ.e. hvort beitt er stjórnvaldssektum og/eða styttingu samnings.
Einnig er kveðið á um sjálfvirkt bann við stöðvun samningsgerðar eftir að kæra hefur borist.
Þeir sem óska eftir því að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpsdrögin geta gert það með því að senda tölvupóst á netfangið postur@fjr.stjr.is, með orðunum ‘opinber innkaup 2010' í fyrirsögn. Einnig er hægt að koma athugasemdum á framfæri við ráðuneytið með hefðbundnum bréfpósti. Síðasti dagur til að skila umsögn er mánudagurinn 23. ágúst 2010.
Skjöl:
- Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup (PDF 202 KB)
- Valdar greinar og kaflar úr lögum um opinber innkaup nr. 84/2007 með innfelldum breytingum (PDF 340 KB)
- Lauslegt yfirlit yfir innleiðingu einstakra greina tilskipunar 2007/66/EB (PDF 186 KB)
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/66/EB (PDF 302 KB)
