Könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna

Árin 2006 og 2007 fór fram viðamikil könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Markmið könnunarinnar var að kanna viðhorf starfsmanna ríkisins til eigin starfsumhverfis, auk þess sem forstöðumenn voru sérstaklega spurðir um starfsmannamál sinna stofnana.

Könnunin skiptist í tvennt, starfsmannahluta annars vegar og forstöðumannahluta hins vegar. Niðurstöður starfsmannahlutans voru gefnar út í apríl 2007. Niðurstöður forstöðumannahlutans voru gefnar út í þrennu lagi. Fyrsti hlutinn kom út í október 2007, annar hluti í febrúar 2008 og sú þriðja í mars 2008. Nánar er fjallað um könnunina og einstaka hluta hennar hér fyrir neðan.

Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmannamála hjá stofnunum ríkisins sem nýtast bæði ráðuneytum og stofnunum við mótun áherslna í starfsmannamálum og við áframhaldandi þróun stjórnunaraðferða. Um sambærilega könnun er að ræða og framkvæmd var árið 1998 þar sem niðurstöður voru gefnar út í riti fjármálaráðuneytisins um starfsumhverfi ríkisstarfsmanna við aldarhvörf. Könnunin gefur því mikilvægan samanburð um hvernig starfsumhverfi ríkisstarfsmanna og stjórnun stofnana hefur breyst á tímabilinu, auk þess sem mat fæst á áhrifum nýjunga eins og nýju launakerfi, árangursstjórnun, o.fl.

Könnunin var samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM. Þá veitti Félag forstöðumanna ríkisstofnana mikla og góða aðstoð.

Starfsmannahluti

Skýrsla með meginniðurstöðum viðhorfskönnunar meðal ríkisstarfsmanna kom út í apríl 2007. Könnunin var framkvæmd í nóvember og desember 2006 og að baki niðurstöðunum liggja svör tæplega 10 þúsund ríkisstarfsmanna sem starfa hjá 144 stofnunum ríkisins. Í niðurstöðunum er fjallað um stjórnun og stjórnunartengda þætti, mannauðsstjórnun ríkisstofnana og starfsaðstæður ríkisstarfsmanna.

Niðurstöður voru kynntar á morgunverðarfundi þann 11. apríl 2007 sem aðstandendur könnunarinnar og Félag forstöðumanna stóðu fyrir. Skýrslan og erindi fyrirlesara eru aðgengileg hér fyrir neðan.


Forstöðumannahluti

Fyrsti hluti
Fyrsta skýrsla af þremur með niðurstöðum úr forstöðumannahluta starfsumhverfiskönnunar ríkisstarfsmanna kom út í október 2007.

Fyrsta skýrslan fjallar um niðurstöður úr viðhorfahluta forstöðumannakönnunarinnar. Fjallað er um mat forstöðumanna á fyrirkomulagi launaákvarðana þar sem laun eru ákvörðuð með stofnanasamningum. Greint er frá afstöðu forstöðumanna til laga og reglna um starfsmannastjórnun og mati þeirra á fjárhagslegu og faglegu svigrúmi þeirra og samskiptum við ráðuneyti. Einnig er fjallað um mat forstöðumanna á því hvort námskeið á vegum stéttarfélaga og tengdra fræðslusetra skili tilætluðum árangri fyrir starfsemi stofnunarinnar.

Uppbygging skýrslunnar er í svipuðum dúr og niðurstöður úr starfsmannahlutanum. Sundurgreiningu á einstökum niðurstöðum er haldið í lágmarki. Áhersla er lögð á að lýsa talnaefni á myndrænu formi. Sundurgreiningu eftir stofnana- og stærðarflokkum er að finna í töflum í viðauka skýrslunnar. Einnig er að finna í viðauka spurningalista viðhorfahluta könnunarinnar.

Niðurstöður voru kynntar á morgunverðarfundi þann 24. október 2007 sem fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag forstöðumanna stóðu fyrir. Skýrslan og erindi fyrirlesara eru aðgengileg hér fyrir neðan.


Annar hluti
Önnur skýrsla af þremur kom út í febrúar 2008.

Í skýrslunni er fjallað um stjórnun mannauðsmála hjá ríkisstofnunum, nánar tiltekið um skipulag starfsmannamála, starfsmannastefnu, starfslýsingar, upphaf starfs, þar með talið, ráðningarferil, starfsþróun og starfsmannasamtöl. Þá var fengið mat forstöðumanna á gildi aðferða við mannauðstjórnun.

Niðurstöður voru kynntar á morgunverðarfundi þann 6. febrúar 2008 sem samstarfsaðilar könnunarinnar stóðu fyrir. Skýrslan og erindi fyrirlesara eru aðgengileg hér fyrir neðan.


Þriðji hluti
Þriðja og síðasta skýrslan úr forstöðumannahlutanum fjallar um menntun og fyrri störf forstöðumanna, verkefni þeirra, viðhorf til eigin starfs og launa, upphaf starfs, starfsþróun og starfsumhverfis. Niðurstöður voru kynntar á morgunverðarfundi þann 27. mars 2008 sem fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag forstöðumanna stóðu fyrir. Skýrslan er aðgengileg hér fyrir neðan.

Nánar um könnunina

Eins og áður segir er könnunin samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM. Niðurstöðurnar veita dýrmætar upplýsingar sem nýtast við mótun áherslna í starfsmannamálum og við áframhaldandi þróun stjórnunaraðferða. Könnunin hefur jafnframt fræðilegt gildi á sviði opinberrar stjórnsýslu.

Eftirfarandi eru nánari upplýsingar um könnunina í heild:

Starfsumhverfi við aldarhvörf

Sambærileg rannsókn var gerð veturinn 1998 - 1999. Gerðar voru tvær umfangsmiklar kannanir á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna og starfsmannamálum ríkisstofnana. Niðurstöður þeirra og fleiri upplýsingar voru birtar haustið 1999.




Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica