Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs janúar-september 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – september 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var lítillega neikvæður en er betri en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 26,2 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 38,3 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um tæpa 30 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á 8,8 ma.kr. 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum