Nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra
Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra.
Teitur er 34 ára lögfræðingur frá Háskóla Íslands og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2007. Eftir útskrift frá lagadeild starfaði hann hjá LOGOS lögmannsstofu frá 2006-2007, í framkvæmdastjórn og stjórn Eyrarodda hf. á Flateyri 2007-2011 og sem lögmaður hjá OPUS lögmönnum frá 2011.
Teitur hóf störf í fjármálaráðuneytinu 14. ágúst.