Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2011-2014
Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 1/2011
- Stefna í lánamálum ríkisins 2011-2014 (PDF 880 KB)
Stefna í lánamálum ríkissjóðs endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.
Í stefnunni er lýst núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við framkvæmd lánamála. Fjármálaráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um verðbréfaútgáfu. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli þessara aðila. Stefna í lánamálum ríkisins hefur ekki áður verið kynnt með viðlíka hætti og nú.
Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:
- Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu. Þá skal stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
- Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið.
- Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
- Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika.
- Leitast er við að marka skýra stefnu í lánamálum og setja fram mælanleg markmið
- Samskipti við markaðsaðila verða aukin. Stjórnvöld verða sýnilegri, t.d. með reglulegum fundum með aðalmiðlurum og fjárfestum um málefni er varða lánamál ríkisins. Stefnan verður uppfærð og endurskoðuð árlega.
Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði a.m.k. 4 ár.
Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.
Heildarskuldir ríkissjóðs í árslok 2010 námu um 83% af VLF. Stefnt er að því að lækka heildarskuldir á tímabilinu þannig að þær verði lægri en 70% í árslok 2014. Hreinar skuldir námu um 43% af VLF í árslok 2010. Stefnt er að því að lækka þær í um 35% af VLF fyrir árslok 2014.
Nánari upplýsingar gefa;
Ingvar H. Ragnarsson, sérfræðingur á fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, ingvar.ragnarsson hjá fjr.stjr.is
og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, rosa.bjork.brynjolfsdottir hjá fjr.stjr.is
Reykjavík, 2. febrúar 2011
