Hoppa yfir valmynd

11 Samgöngu- og fjarskiptamál

Innviðaráðuneytið
Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Umfang

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð innviðaráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2022–2024.

Heildarútgjöld 

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn málefnasviðsins er að Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tækni tengi byggðir landsins og Ísland við umheiminn í jafnvægi við umhverfið.

Meginmarkmiðin eru að innviðir og þjónusta mæti þörfum almennings og atvinnulífs og sjálfbær þróun byggða og sveitarfélaga um land allt.

Fjármögnun

Heildarframlög til málefnasviðsins á tímabili áætlunarinnar nema tæpum 312 ma.kr. Framlög aukast um 6,1 ma.kr. á milli áranna 2024­–2025 sem skýrist fyrst og fremst af auknum framlögum til samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu og auknum fjárveitingum til framkvæmda, viðhalds og vetrarþjónustu á vegakerfinu. Á árunum 2026–2029 vegast á hækkanir og lækkanir, s.s. aukning til framkvæmda og niðurfelling á ýmsum tímabundnum framlögum, s.s. vegna tengivega. Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Yfirstandandi er útboð á hönnun, framkvæmd og fjármögnun á nýrri brú yfir Ölfusá, ásamt aðliggjandi vegum á grundvelli  heimildar í 6. gr. fjárlaga nr. 7.30. Verkefnið hefur verið metið fjárhagslega sjálfbært að gefnum forsendum. Stefnt er að því að gjaldtaka fyrir akstur um brúna muni standa undir heildarkostnaði til lengri  tíma litið og brugðist verði við áhættu verkefnisins með kerfisbundnum hætti.

Útgjaldarammi

Helstu áherslur 2025–2029

Öryggir innviðir

11.1 Samgöngur

Verkefni

Undir málaflokkinn falla þrjár stofnanir: Samgöngustofa, Vegagerðin og Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Að auki eru í gildi þjónustusamningar við Isavia ohf. um rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Þá annast fyrirtækið viðhald, framkvæmdir, þjónustu á flugvallakerfinu og flugleiðsögu.

Í þingsályktun um samgönguáætlun 2020–2034 er mörkuð stefna stjórnvalda til 15 ára sem nánar er útfærð í aðgerðaáætlun til fimm ára 2020–2024. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2024–2038 var lögð fram á Alþingi þann 10. október sl. Samgönguáætlun er samhæfð við aðrar stefnur og áætlanir á málefnasviði ráðuneytisins.

Helstu áskoranir

Áfram er mikil fjárfestingarþörf í öllum samgöngugreinum, bæði í aukinni afkastagetu með nýframkvæmdum en ekki síst í viðhaldi sem verður umfangsmeira með hverju árinu sem líður. Þá eykst sífellt þörf á þjónustu í vegakerfinu, ekki síst vetrarþjónustu. Í þingsályktunartillögu um landsskipulagsstefnu er kveðið á um að í skipulagi verði stuðlað að búsetufrelsi með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu, húsnæði og atvinnutækifærum. Þjónusta í vegakerfinu er m.a. mikilvægt umferðaröryggismál og grundvöllur fyrir að fólk geti búið sér heimili þar sem það helst kýs sem og heilsársferðamennsku hér á landi.

Umferð á þjóðvegum hefur aukist verulega síðustu ár. Vísitala umferðar gefur til kynna að umferð á Hringvegi hafi vaxið um tæp 65% frá 2013 til 2023. Skýrist það ekki síst af vexti í ferðaþjónustu ásamt annarri atvinnuþróun, s.s. í fiskeldi og búsetubreytingum fólks. Spár bæði Vegagerðarinnar og Ferðamálastofu gera ráð fyrir að umsvif og umferð haldi áfram að aukast á næstu árum. Þannig gerir langtímaspá Ferðamálastofu ráð fyrir að vöxtur ferðaþjónustunnar haldi áfram og að árlegur fjöldi erlendra ferðamanna verði kominn upp í rúmar 3,2 milljónir árið 2030. Því til viðbótar eru horfur á því að vöxtur útflutningsgreina, s.s. í fiskeldi og jarð­efnavinnslu, muni valda aukningu í umferð þyngri farartækja. Þá hefur meðalþyngd nýskráðra ökutækja hækkað sem hefur áhrif á slit vega. Með hliðsjón af vexti umferðar undanfarin ár ásamt horfum um þróun umferðar er ljóst að þörf fyrir fjárfestingu í nýframkvæmdum, viðhaldi og þjónustu á vegum er og verður mikil.

Mikil uppsöfnuð þörf er fyrir fjárfestingu í viðhaldi vegakerfisins, sem á sér ekki síst orsök í of lágu fjárfestingarstigi á árunum eftir fjármálahrun ásamt hraðri aukningu umferðar samhliða fjölgun ferðamanna hér á landi. Framlög til viðhalds hafa farið hækkandi undanfarin ár og nema nú um 10–12 ma.kr. á ári. Á næstu árum er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu í framlögum til viðhalds, sem annars vegar skýrist af breyttri skiptingu milli nýframkvæmda og viðhalds og hins vegar auknum fjárveitingum sem nema 1 ma.kr. árin 2025 og 2026 og 1,5 ma.kr. árin 2027–2029. Með þessu móti ætti árleg fjárfesting í viðhaldi vegamannvirkja að vera orðin um 16,5 ma.kr. á ári síðustu ár áætlunarinnar.

Mikilvægt er að hægt sé að halda úti þjónustu á vegum en sífellt aukast kröfur í þjóðfélaginu um bætta þjónustu, s.s. hreinsun gatna, og ekki síður bætta vetrarþjónustu. Snjómokstur og önnur vetrarþjónusta á vegum er nauðsynleg svo tryggja megi greiðar og öruggar samgöngur árið um kring. Þá hefur þjónustan mikil áhrif á þróunarmöguleika atvinnu- og mannlífs víða um land og mun þörfin aukast til framtíðar með aukinni umferð og kalli eftir aukinni þjónustu. Þar við bætist þörf annarra ferðamáta, s.s. göngu, hjólreiða og rafhlaupahjóla, sem útlit er fyrir að muni halda áfram að vaxa. Verðlagsþróun ásamt aukinni umferð á flestum leiðum hefur valdið því að kostnaður við þjónustuna hefur aukist.

Frá lokum Covid-faraldursins hefur farþegum í almenningssamgöngum farið fjölgandi á flestum leiðum. Talsverð áskorun er í fjárfestingum tengdum orkuskiptum, bæði á landi og í ferjum á sjó. Mikilvægt er að áfram verði unnið að innleiðingu stefnu í almenningssamgöngum. Hluti af því er vinna við mótun tillagna til eflingar á almenningssamgöngum milli höfuðborgar­svæðisins og Keflavíkurflugvallar. Vegna markaðsbrests er flug milli höfuðborgarsvæðisins og Vestmannaeyja ekki lengur talið mögulegt án aðkomu ríkisins. Flugið er sérstaklega mikilvægt yfir vetrarmánuðina, þegar auknar líkur eru á röskun á ferjusiglingum. Nú er gert ráð fyrir framlagi til ríkisstyrkts flug milli höfuðborgarsvæðisins og Vestmannaeyja á þessu tímabili.

Þá er gert ráð fyrir fjármögnun vegna dýpkunar á svokölluðum Grynnslum, fyrir utan Hornafjarðarós. Um þau þurfa allar siglingar til og frá Höfn í Hornafirði að fara og er dýpi í siglingarrennunni þar því mesti áhrifavaldur á rekstrargrundvöll hafnarinnar. Undanfarin ár hefur dýpi á Grynnslunum ekki verið nægjanlegt svo stærri skip geti með öruggum hætti siglt inn í höfnina. Það eru því miklir hagsmunir í húfi fyrir samfélagið á svæðinu að það takist að tryggja rekstrarhæfi hafnarinnar og þeirrar atvinnustarfsemi sem þar starfar.

Samkvæmt farþegaspá munu 25 flugfélög fljúga með 8,5 milljónir farþega um Keflavíkur­flugvöll árið 2024. Fjölgun farþega leiðir til vaxtar í tengdum verkefnum hjá flugfélögum, flugvernd, flugvirkt, nýskráningu flugvéla og neytendavernd. Aukning í millilandaflugi kallar einnig á aukna afkastagetu alþjóðaflugvalla til að gegna hlutverki varaflugvalla fyrir flug á leið til landsins.

Samgöngur hafa áhrif á umhverfið, bæði staðbundin í formi svifryksmengunar, hávaða og vatnsmengunar, og einnig hnattræn í formi loftslagsáhrifa. Eitt af markmiðum samgöngu­áætlunar er að dregið verði úr þessum umhverfisáhrifum. Um þriðjungur losunar gróðurhúsa­lofttegunda hér á landi kemur frá samgöngum. Megnið af þeirri losun kemur frá vegasam­göngum og skipum en losun í millilandaflugi er þar undanskilin.

Greiningar gefa til kynna að ábyrgð á fjölskyldu og heimilisstörfum hvíli meira á herðum kvenna. Birtingarmynd þessa í samgöngum er m.a. sú að konur ferðast að jafnaði fleiri og styttri ferðir en karlar. Raunveruleg vinnusóknarsvæði kvenna virðast minni en karla en kann­anir sýna að konur veigra sér frekar en karlar við að ferðast á fjallvegum og í hættulegri færð. Loks ber að nefna marktækan mun á öryggisupplifun kynjanna og mati á eigin færni sem aftur endurspeglast í miklum mun á tíðni og orsökum slysa. Þá eru hlutfallslega mun fleiri karlar en konur sem látast eða slasast alvarlega í umferðarslysum.

Tækifæri til umbóta

Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2024–2038, sem nú er til meðferðar hjá Alþingi, eru lagðar til aðgerðir til framfara á öllum sviðum samgangna um land allt. Meðal þess helsta sem lagt er til á næstu árum eru umfangsmiklar framkvæmdir við aðskilnað aksturs­stefna á helstu stofnleiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þær framkvæmdir skipta samfélagið miklu máli, ekki síst m.t.t. flæðis og umferðaröryggis. Þá er einnig unnið að framkvæmdum á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit og yfir Dynjandisheiði sem munu bæði auka öryggi og stytta akstursleiðir verulega. Þá eru á fyrsta tímabili áætlunarinnar lögð fram áform um umbætur víða, s.s. á Skógarstrandarvegi, Innstrandavegi, Norðausturvegi um Skjálfandafljót og yfir Brekknaheiði, Vatnsnesvegi og á Hringvegi um Reyðarfjarðarbotn og Teigarhorn. Lagt er til að áfram verði áhersla á lagningu bundins slitlags á tengivegi. Í áætluninni er einnig gerð grein fyrir fleiri tækifærum á sviði samgöngumála. Hér er gerð grein fyrir þeim helstu.

Endurskoðun á tekjuöflun ríkisins af ökutækjum og umferð. Fyrstu skref hafa verið tekin í endurskoðun á tekjuöflunarkerfi ríkisins af ökutækjum og umferð en tekjur af hefðbundnum tekjustofnum hafa dregist verulega saman vegna orkuskipta. Mikilvægt er að tryggja að tekju­öflun standi undir þeirri viðhaldsskuld sem er í vegakerfinu og fjárfestingarþörf sem fyrirsjáanleg er á næstu árum. Þá er einnig mikilvægt að tryggja sveigjanleika og að hægt verði að flýta þjóðhagslega arðsömum framkvæmdum um land allt.

Samvinnuverkefni og jarðgangaáætlun. Á grundvelli laga um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir hefur verið unnið að ­flýtingu mikilvægra og arðbærra samgönguinnviða sem ella tæki áratugi að koma til framkvæmdar. Með því næst fyrr fram bæði þjóðhagslegur ávinningur sem og beinn ábati fyrir vegfarendur. Í lögum um samvinnuverkefni eru tilgreind verkefni sem gert er ráð fyrir að verði fjármögnuð í heild eða að hluta með innheimtu veggjalda í allt að 30 ár. Unnið er að framkvæmdum við nýjan veg og brú yfir Hornafjarðarfljót sem áætlað er að ljúki 2025. Þá stendur yfir útboðsferli v­egna hönnunar, framkvæmdar og fjármögnunar á framkvæmdatíma vegna byggingar nýrrar brúar yfir Ölfusá. Stefnt er að því að ljúka því verkefni árið 2026. ­Framangreindar framkvæmdir hafa beinan ábata fyrir vegfarendur, m.a. með auknu umferðaröryggi, bættu umferðarflæði og styttri ferðatíma.

Stjórnvöld hafa lýst yfir að stefnt sé að flýtingu á uppbyggingu mikilvægustu jarð­gangakosta landsins og að alls verði 14 jarðgöng unnin á 30 árum í stað mun lengri tíma (allt að 80–100 árum). ­ Til viðbótar við framan­greint eru svo framkvæmdir Betri samgangna ohf. á grundvelli samgöngusáttmála höfuð­borgarsvæðisins sem fyrirhugað er að verði að hluta til fjármagnaðar með flýti- og umferðar­gjöldum eða annarri fjármögnun ríkisins, en unnið er að útfærslu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins. Fulltrúar ríkis og sex sveitarfélaga, sem standa að samgöngusáttmálanum, vinna nú að því að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann. Tekið verði tillit til uppfærðra forsenda og samgönguþróunar undanfarin ár. Ljóst er að kostnaðaráætlanir verkefna sáttmálans hafa hækkað sem m.a. skýrist af verðlagsbreytingum og breytingum á umfangi og útfærslu verkefna í undirbúnings- og hönnunarferli verkefnanna. Þessu til viðbótar er unnið að því að skýra og staðfesta með nánari hætti en áður aðra þætti svo sem í sambandi við stjórnskipulag, veghald og framtíðar rekstur og mörkun og nánari skilgreiningu verkefna. Uppbygging Samgöngusáttmálans er lykilþáttur í uppbyggingu höfuðborgarsvæðisins til framtíðar og mun skila samfélaginu miklum ábata. Þær munu stuðla að greiðum og öruggum samgöngum ásamt því að draga úr umhverfisáhrifum vegna þeirra.  ­

Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er að endurskoðun á samningi ríkis og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um eflingu almenningssamgangna í samræmi við viljayfirlýsingu þar um sem undirrituð var samhliða undirritun samgöngusáttmála. Sam­kvæmt samningnum hefur ríkið lagt tæplega milljarð til reksturs almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu á ári hverju. Í samningnum er aðkoma ríkisins að rekstrinum skilgreind. Stefnt verði að því að efla þjónustuna til muna og tryggja innleiðingu á nýju leiðaneti Borgarlínu og Strætó til lengri tíma. Þannig er stefnt að því að farþegum muni fjölga á tímabilinu og þar með muni farþegatekjur aukast.

Varaflugvallagjald. Með samþykkt laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð er nú innheimt svokallað varaflugvallagjald sem nemur 200 kr. á farþega. Gjaldið, sem áætlað hefur verið að muni skila um 1.300 m.kr. á ári, rennur til uppbyggingar og reksturs varaflugvalla. Stefnt er að gerð akbrautar og flughlaðs á Egilsstaðaflugvelli. Lokið verður við nýtt flughlað og flugstöðina á Akureyri. Mun þetta jafnframt efla fleiri fluggáttir inn í landið, styrkja ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi og stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið.

Umhverfismál. Árangur í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum er lykilþáttur í því að tryggja kolefnishlutlausa framtíð hér á landi og í að standast þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum. Tækifærin til úrbóta eru mörg, þau helstu tengjast orku­skiptum í samgöngum og breytingum á ferðavenjum.

Í orkuskiptum er sérstaklega litið til rafvæðingar sem og framleiðslu á innlendu lífeldsneyti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar birtast víðtæk áform um orkuskipti í almennings­samgöngum, þungaflutningum og höfnum, auk þess sem stefnt er að því að net hleðslustöðva verði þétt um land allt til stuðnings orkuskiptum í dreifðum byggðum og ferðaþjónustu.

Í samgönguáætlun hafa framlög til uppbyggingar göngu- og hjólreiðastíga aukist á undan­förnum árum og áfram verður haldið á sömu braut. Mikilvægi slíkra innviða hefur aukist sam­hliða hraðri aukningu á umferð smáfarartækja.

Efling almenningssamgangna ásamt aukinni hlutdeild göngu og hjólreiða um allt land er lykilþáttur í því að draga úr umhverfisáhrifum samgangna og samræmist velsældaráherslu ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutlausa framtíð.

Kynja- og jafnréttissjónarmið. Ljóst er að bættar tengingar innan vinnusóknarsvæða sem og fækkun fjallvega og hættulegra vegkafla koma betur til móts við þarfir kvenna. Af því leiðir að framkvæmdir á vegum, s.s. uppbygging jarðganga og lagning bundins slitlags á malarvegi, eru líklegar til að hafa jákvæð áhrif á jafnrétti kynja. Sömu sögu má einnig segja um bætta þjónustu á vegum .

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða 2023

Viðmið 2025

Viðmið 2029

Greiðar samgöngur.

9.1, 11.2

Fækkun einbreiðra brúa á Hringvegi.

29

24

20

 

Óbundið slitlag (km) á stofn­vegum í grunnneti utan hálendis.

226

203

165

Öruggar samgöngur.

3.6, 11.2

Látnum og alvarlega slösuðum í umferð fækki að jafnaði um 5% á 100.000 íbúa á ári.

204

150

122

 

Flugslysum og alvarlegum flug­atvikum fækki í almannaflugi um 10% á ári.

8

8

5

 

Skráðum atvikum á sjó fækki að jafnaði um 5% á ári.

101

75

67

Hagkvæmar samgöngur.

9.1, 11.2

Samgöngukostnaður heimila %.

15%*

13,5%

13%

Umhverfislega sjálfbærar samgöngur.

9.1, 11.2

Losun gróðurhúsalofttegunda
frá vegasamgöngum.

926 kt CO2-íg.**

763 kt CO2-íg.

645 kt CO2-íg.

 

Hlutfall ferða á höfuðborgar­svæðinu með öðrum ferðamáta en einkabíl.

28%

30%

32%

Jákvæð byggðaþróun.

11.2

Fjöldi farþega með innan­landsflugi.

696.779

740.000

830.000

 

Bundið slitlag (km) á tengivegum.

1.357

1.427

1.567

           

* Hlutfall af heildarútgjöldum, tekur m.a. mið af kostnaði við kaup og rekstur ökutækja, fargjöldum og flutningum. Heimild: Hagstofan.
** Bráðabirgðatölur skv. losunarbókhaldi Umhverfisstofnunar.

Breyting mælikvarða frá fyrri fjármálaáætlun: Mælikvarðinn hlutfall almenningssam­gangna, hjólandi og gangandi í fjölda ferða á höfuðborgarsvæðinu fellur brott. Í staðinn kemur mælikvarði um hlutfall ferða á höfuðborgarsvæðin með öðrum ferðamáta en einkabíl. Ástæða er til þess að bæta við mælikvarðann öðrum minni ferðamátum, s.s. smáfarartækjum sem eiga það sameiginlegt að valda minni umhverfisáhrifum en umferð einkabíla.

11.2 Fjarskipti, netöryggi og stafræn þróun

Verkefni

Undir málaflokkinn falla m.a. fjarskipti, þ.á.m. fjarskiptaþjónusta og fjarskiptavernd, net­öryggi og öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, auk margvíslegra verkefna sem varða t.d. meðhöndlun samfélagslegra gagna, rafræna auðkenningu og traustþjónustu sem og tæknilausnir á sviði gervigreindar.

Nýlegum lögum um fjarskipti nr. 70/20221 er ætlað að stuðla að hagkvæmri uppbyggingu fjarskiptainnviða með aukinni samnýtingu, auknu öryggi fjarskipta, bættu aðgengi notenda að fjarskiptaþjónustu um allt land, auk áherslu á virka samkeppni á fjarskiptamarkaði.

Í lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019 er áhersla lögð á skipulagslega og tæknilega þætti netöryggis og að tryggja öryggi þeirrar fjölþættu­ netháðu þjónustu sem samfélagið byggir á, ekki síst þjónustu mikilvægra innviða. Í samræmi við lögin hefur ráðherra markað netöryggisstefnu Íslands 2022–2037 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2022–2027 sem byggir á áherslum netöryggisstefnunnar.

Til málaflokksins heyra eftirtaldar stofnanir, sjóðir, nefndir og ráð: Fjarskiptastofa ásamt netöryggissveit Fjarskiptastofu, fjarskiptasjóður, jöfnunarsjóður alþjónustu, úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála og netöryggisráð, sjá nánari umfjöllun á bls. 273 í fjármálaáætlun 2023–2027.

Helstu áskoranir

Þrátt fyrir almennt góða stöðu og jákvæða þróun í fjarskiptum, netöryggi og stafrænni þróun, þá standa stjórnvöld frammi fyrir ýmsum áskorunum á þessum sviðum. Þær byggja m.a. á hraðri tækniþróun sem og vaxandi kröfum um nýtingu stafrænna kerfa og þjónustu til sköpunar tækifæra og aukinna búsetugæða.

Fjarskipti: Ljúka þarf við ljósleiðaravæðingu landsins ef áherslur stjórnvalda um Ísland sem gígabitaland eiga að verða að veruleika á næstu árum. ­Fjöldi þéttbýlisstaða og byggða­kjarna þar sem innan við 80% heimila og fyrirtækja höfðu aðgang að fjarskiptatengingu um ljósleiðara var 51 um mitt ár 2023, af samtals 102. Á stofnvegum landsins voru samtals um 124 km án áreiðanlegs talsambands og netsambands með farsíma í október 2023. Ein helsta forsenda þess að uppbygging og rekstur þessara þráðbundnu og þráðlausu aðgangsneta gangi eftir er að ljósleiðarastofnkerfin um landið verði efld, stækkuð og hringtengd í auknum mæli. Í fjarskiptalögum er aukin áhersla á öryggi fjarskiptainnviða og -þjónustu sem kalla á uppfærslu fjarskiptainnviða og forgangsröðun aðgerða og fjármagns.

Netöryggi: Líkt og í löndunum í kringum okkur felst veikasti hlekkur netöryggis á Íslandi í grandvaraleysi, vanþekkingu og mannlegum mistökum. Stríð milli landa, sem nú fara einnig fram á netinu, sífelld aukning skipulagðra netglæpa og stóraukin almenn netnotkun krefst þess að stjórnvöld taki enn markvissari skef til aukins netöryggis. Góð samvinna stjórnvalda og atvinnulífs skiptir þar miklu máli.

Þrátt fyrir skýrar kröfur til net- og upplýsingaöryggis hafa fyrirtæki og stofnanir sem kröfurnar ná til talið sig eiga erfitt um vik með að uppfylla þær til hlítar og borið við smæð eða skorti á sérfræðiþekkingu. Þá er ljóst að eftirlit með framfylgni við lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða hefur verið torveldara eða minna en lagt var upp með við setningu laganna.

Stafræn þróun: Þekkingariðnaður er án landamæra og því mikilvægt að nýta sem best það alþjóðlega samstarf og þau tækifæri sem þar bjóðast. Það er þó áskorun fyrir lítið ríki eins og Ísland að halda í við hraða þróun evrópskrar reglusetningar ásamt því að skapa farveg til nýsköpunar á sviði stafrænna lausna og þróunar. Fylgjast þarf vel með þróun tæknilausna og stafrænnar þjónustu sem veitt er milli ríkja, s.s. síaukinni notkun á skýjaþjónustu og almennt aukinni útvistun á þróun, rekstri og þjónustu á þessu sviði, út fyrir íslenska lögsögu. Þá þarf einnig að fylgjast vel með þróun á sviði gervigreindar, þ.m.t. með tækifærum til hagnýtingar hennar til hagsbóta fyrir íslenskt efnahagslíf og alþjóðlegri reglusetningu.

Tækifæri til umbóta

Fjarskipti og stafrænar lausnir eru mikilvæg undirstaða framfara og gegna lykilhlutverki í nútímaþjóðfélagi, þ.m.t. á sviði menntunar, nýsköpunar og hugverkaiðnaðar. Segja má að fjar­skipti, netöryggi og ýmis önnur viðfangsefni á því sviði myndi stafræna innviði samfélagsins og geri aðra stafræna þróun mögulega.

Traustar undirstöður, í formi aðgengilegra, hraðvirkra, áreiðanlegra og öruggra fjarskipta, stafrænna lausna sem og nútímalegs regluverks á því sviði, eru forsenda hugvitsdrifinnar verð­mætasköpunar og alþjóð­legrar samkeppnishæfni samfélagsins sem styður við velsældaráherslu ríkisstjórnarinnar um grósku í nýsköpun. Sú krafa endurspeglast einnig í öllu alþjóðlegu samstarfi og skuldbind­ingum, s.s. samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES).

Fjarskipti: Uppbyggingu ljósleiðaraaðgangsneta í öllu dreifbýli landsins lauk farsællega árið 2022 á grundvelli síðustu styrktarsamninga fjarskiptasjóðs. Áframhaldandi ljós­leiðaravæðing heimila og fyrirtækja er eitt af forgangs­verkefnum stjórnvalda.2 Markaðsaðilar og opinberir aðilar hafa látið í ljós áform í þessa veru á undanförnum misserum og tímabært að þau áform verði formlega staðfest. Til greina kemur að ríkið styrki uppbyggingu á svæðum sem slík áform ná ekki til.

Útleigu á tveimur ljósleiðaraþráðum Atlantshafsbandalagsins til ársins 2032 er ætlað að stuðla að aukinni samkeppni á heildsölumarkaði og uppbyggingu ljósleiðarastofn- og aðgangsneta.­

Þriðji fjarskiptasæstrengurinn, ÍRIS, sem tengir Ísland við Evrópu, var tekinn í gagnið í mars 2023. Með því var uppfyllt markmið stjórnvalda til margra ára um að þrír fjarskipta­sæstrengir tengi landið við Evrópu á hverjum tíma, frá aðskildum landtökustöðum. Ljóst má vera að fleiri strengir auka enn frekar á fjarskiptaöryggi landsins. Jafnframt býður aukið framboð hraðvirkra og hagkvæmra nettenginga um gervihnetti yfir Íslandi upp á valkosti í fjarskiptum við útlönd fyrir þá aðila sem það þurfa eða kjósa. Ísland og Noregur eru í sam­eiginlegum viðræðum við Evrópusambandið um aðkomu landanna að áætlunum sambandsins á þessu sviði.

Fjarskiptastofa endurúthlutaði svo til öllum farnetstíðnum til markaðsaðila í lok mars 2023. Í tíðniheimildum stofnunarinnar, sem eru til 20 ára, eru almennar kvaðir um metnaðarfulla útbreiðslu og stigvaxandi gagnahraða farneta gagnvart byggð sem kallar á nokkuð samfellda uppbyggingu og rekstur 5G-kerfa. Jafnframt var sett sértæk kvöð um samfellda dekkun á öllu stofnvegakerfinu á láglendi. Uppbygging ljósleiðaraaðgangsneta og ljósleiðarastofnneta styður við umrædd verkefni.

Netöryggi: Mikilvægt er að efla netöryggi í samræmi við netöryggisstefnu og aðgerða­áætlun stjórnvalda sem samanstendur af 66 aðgerðum á grunni stefnunnar. Árangursrík framkvæmd aðgerðanna mun leiða til mikilla framfara til aukins netöryggis alls samfélagsins og færa Ísland framar í alþjóðlegum samanburði í þeim efnum. Þá er fjárfesting í netöryggi ein af forsendum þess að hægt sé að nýta til fulls möguleika stafrænna lausna.

Forgangsröðun aðgerðaáætlunar um netöryggi er byggð á stöðugu áhættumati og verður þar sérstaklega horft til þess að auka hæfni og þekkingu hins almenna netnotanda og auka tækifæri til sérmenntunar á háskólastigi. Því til stuðnings er m.a. komið á fót samstarfsvettvangi fræðslu, menntunar og rannsókna í netöryggi sem mun einnig styðja við nýsköpun og þróun netöryggislausna. Þá er brýnt að stjórnkerfi netöryggis og netöryggissveit CERT-IS sé á hverjum tíma í stakk búin að mæta ógnum á þessu sviði.

­­ Mikilvægt er að ástandsgreining taki mið af netöryggisógnum og -atvikum sem ógna samfélaginu. Ný tilskipun Evrópusambandsins um að efla og samhæfa öryggisstig í net- og upplýsingakerfum sambandsins (NIS2)3 verður innleidd í landslög, auk fleiri umfangsmikilla tilskipana og annars ESB-regluverks á komandi árum. Þá verður árangur metinn af framkvæmd gildandi laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Innleiðingu á NIS2 þarf að samræma við innleiðingu tilskipunar ESB um rekstrarviðnám mikilvægra innviða (CER), sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið og reglugerð ESB um viðnámsþrótt starfræns fjármálamarkaðar (DORA), sem heyrir undir fjármálaráðuneytið. Um er að ræða umfangsmikið regluverk sem mun ná til fjölmargra opinberra og einkaréttarlegra þátta á sviði netöryggis. Í tengslum við þetta koma almannavarna- og varnarmálaþættir landsins til sérstakrar skoðunar.

Ný reglugerð um netöryggisráð hefur tekið gildi og skipað verður í nýtt ráð á vormánuðum 2024, auk þess sem nýr samstarfsvettvangur stjórnvalda og hagsmunaaðila atvinnulífsins verður settur á fót. Þörf er á enn frekari áherslu atvinnulífs og stjórnvalda á áfallaþol og viðbragðsgetu vegna netöryggisatvika.

Lögð verður áhersla á að CERT-IS verði fullgildur aðili að alþjóðlegu samstarfi á sviði netöryggis, s.s. með þátttöku í stofnun sameiginlegrar netöryggismiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

Stafræn þróun: Viðvarandi áhersla er á aukna stafvæðingu í öllum krókum samfélagsins með meiri skilvirkni og aukin lífsgæði að leiðarljósi. Viðfangsefnin eru af margvíslegu tagi, s.s. lagaleg, félagsleg og tæknileg. Mótuð verður skýr stefna með markmiðum, mælikvörðum og markvissum aðgerðum til að skapa fullnægjandi umgjörð til að leiða fram tækifæri og takast á við áskoranir á sviði endurnota opinberra upplýsinga, gervigreindar og rafrænnar auð­kenningar. Unnið verður að aðgerðaáætlun á sviði gervigreindar sem styður við ábyrga þróun og notkun á gervigreind. Mótuð verður heildstæð löggjöf, byggð á tilvonandi reglugerð ESB um gervigreind, sem miðar að því að vernda heilsu, öryggi og grundvallarréttindi með því að setja skorður við þróun og notkun áhættusamrar gervigreindar.

Lögð verður áhersla á stuðning við verkefni sem leiða til nýrra tækifæra á sviði upplýsinga­tækni og auka vægi stafrænna lausna með því að nýta vel þátttöku í alþjóðlegu samstarfi sem og styrkjakerfi á borð við Digital Europe Programme og Horizon Europe, og brúa bilið á milli rannsóknar, þróunar og markaðssetningar á eftirtöldum sviðum: Ofurtölvumál, gervigreind, netöryggi, almenn færni á sviði stafrænnar tækni og að tryggja víðtæka notkun á stafrænni tækni. Jafnframt verður unnið að því að innleiða regluverk Evrópusambandsins á sviði staf­rænnar þróunar sem hefur á undanförnum árum vaxið að umfangi.

Öflug og örugg fjarskiptaþjónusta getur stuðlað að aukinni fjölbreytni í störfum og fjarnámi óháð staðsetningu og aukið möguleika fólks á sveigjanleika til vinnu og menntunar sem er ein af velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Jafnframt getur slíkur sveigjanleiki minnkað losun gróðurhúsalofttegunda sem annars yrði vegna ferða á milli vinnu og heimilis.

Áhrif uppbyggingar fjarskipta eru jákvæð á öll kyn. Eins og fram kemur í skýrslu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá 2021, Ísland ljóstengt: Samfélagsleg áhrif af verkefninu 2016–2021, má greina að bættar nettengingar auki byggðafestu kvenna umfram karla í dreifbýli.4 Þá benda kannanir Fjölmiðlanefndar til þess að kynin upplifi ógnir á netinu með mismunandi hætti.5 Við forgangsröðun aðgerða um aukið netöryggi verður lögð áhersla á aðgerðir sem jafna stöðu kynja og þjóðfélagshópa.

Áhættuþættir

Áhættuþættir í almennum fjarskiptum stafa ekki síst af veðurfari, legu landsins og þeirri staðreynd að landið er jarðfræðilega mjög virkt. Raf­orkuleysi vegna óveðurs, jarðhræringa og eldsumbrota er áskorun sem bæði fjarskiptafyrirtæki og stjórnvöld hafa bætt veru­lega úr á undanförnum árum og munu vinna áfram að.

Stóraukin almenn netnotkun og sífelld aukning skipulagðra netglæpa kallar á framkvæmd markvissra aðgerða af hálfu stjórnvalda til að efla netöryggi. Ef stjórnvöld setja ekki framkvæmd aðgerða í netöryggi í forgang (t.a.m. mannauð í þau verkefni) verður framkvæmd þeirra ekki árangursrík. Afleiðingar þess yrðu að samfélagið í heild bæri meiri skaða af netárásum og stæði í stað eða jafnvel drægist aftur úr í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að stöðu netöryggis.

Áhersla á aukna stafvæðingu samfélagsins með aukin lífsgæði að leiðarljósi krefst þess að litið verði til margvíslegra þátta, s.s. af lagalegu, félagslegu, siðferðislegu og tæknilegu tagi. Ef ekki verður mótuð skýr stefna með markmiðum, mælikvörðum og markvissum aðgerðum er hætta á ónýttum tækifærum og minni framförum á sviði stafrænnar þróunar. Ef ekki næst að uppfylla kröfur innri markaðar EES til viðskipta á sviði stafrænna lausna mun það minnka samkeppnishæfni Íslands til muna og skerða verulega möguleika íslenskra fyrirtækja á að markaðssetja vörur sínar á Evrópumarkaði.

Til að draga úr ofantöldum áhættuþáttum er mikilvægt að stjórnvöld framkvæmi þær aðgerðir sem upp eru taldar í kafla um Tækifæri til umbóta.

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða
2023

Viðmið 2025

Viðmið 2029

Allri byggð bjóðist aðgangur að áreiðanlegu háhraða-netsambandi og á öllum helstu stofnvegum sé áreiðanlegt farnetssamband.

11.5

*1.1 Fjöldi þéttbýlisstaða og byggðakjarna (alls 102) þar sem innan við 80% heimila og fyrirtækja hafa aðgang að fjarskiptatengingu um ljósleiðara.

51

38

0

*1.2 Fjöldi km á stofn­vegum þar sem ekki næst áreiðanlegt talsamband og að lágmarki 10 Mb farnetssamband óháð markaðsaðila.

124

80

0

Aukin hæfni og nýting netöryggis­tækni.

9.5

*2.1 Skor Íslands skv. matskerfi Alþjóðafjar­skiptasambandsins (ITU)6 sem varðar hæfni og nýtingu á netöryggistækni.

60%

75%

>90%

*2.2 Samanlagður fjöldi skráðra/útskrifaðra nemenda í MSc-námi í netöryggisfræðum hjá íslenskum háskólum.

5–7 / 0

20 / 0

80 / 50

Öruggara netumhverfi.

11.5

*2.3 Skor Íslands skv. matskerfi Alþjóðafjar­skiptasambandsins (ITU)7 sem varðar öruggt netumhverfi.

86%

88%

>90%

           

*1.1 Upplýsingar frá Fjarskiptastofu í janúar 2024 sem byggja á gagnaöflun stofnunarinnar frá júní 2023.
*1.2 Upplýsingar frá Fjarskiptastofu í janúar 2024 sem byggja á gagnaöflun stofnunarinnar frá október 2023.
*2.1 Staða Íslands í úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) árið 2020, sjá stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/Skjol---Frettatengt/ITU%202021%20-%20D-STR-GCI.01-2021-PDF-E.pdf 
*2.2 Gögn frá Háskóla Íslands í febrúar 2023.
*2.3 Staða Íslands í úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) árið 2020, sjá stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/Skjol---Frettatengt/ITU%202021%20-%20D-STR-GCI.01-2021-PDF-E.pdf

11.3 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis Verkefni

Undir málaflokkinn falla aðalskrifstofa innviðaráðuneytis, fastanefndir, s.s. yfirfasteigna­matsnefnd, ýmis verkefni og þjónustusamningar. Umfjöllunin einskorðast við verkefni aðal­skrifstofu ráðuneytisins.

Helstu áskoranir

Innviðaráðuneytið var stofnað árið 2022 þegar breytt skipan Stjórnarráðsins tók gildi í samræmi við forsetaúrskurð nr. 6/2022. Við mótun nýs ráðuneytis hafa orðið töluverðar breyt­ingar á málaflokkum. Nýtt ráðuneyti byggir á grunni fyrrum samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðuneytisins ásamt því að húsnæðis- og skipulagsmál fluttust yfir til ráðuneytisins. Þá fluttust nokkur verkefni frá ráðuneytinu, s.s. fjarskiptamál. Í breytingunum felast bæði áskoranir og tækifæri. Mikil vinna hefur verið í gangi undanfarin ár við að samhæfa stefnumótun og áætlanagerð og auka samvinnu milli málaflokka.

Tækifæri til umbóta

Ýmis tækifæri eru til umbóta í málaflokknum, hér er gerð grein fyrir þeim helstu.

Samhæfingu á allri stefnumótun og áætlanagerð fyrir málaflokka innviðaráðuneytisins verður haldið áfram. Enn fremur er það stöðugt verkefni að sýna árangur á aðgengi­legan hátt sem og einföldun regluverks og umbætur í stjórnsýslunni.

Samhæfing stefnu og áætlana. Ráðuneytið hefur lagt áherslu á samhæfingu áætlana um nokkurt skeið. Með því að samhæfa stefnur og áætlanir gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumótunarinnar enda er þannig tekið mið af tengdum málefnum og horft lengra en til sérstakra verkefna einstakra málaflokka. Samhæfing áætlana er byggð á sameigin­legri framtíðarsýn og meginmarkmiðum fyrir alla málaflokka ráðuneytisins. Í samhæfingu áætlana felst að þær eru samræmdar og vinna saman að umbótum í samfélaginu. Mikilvægt er til framtíðar að efla samhæfingu við stefnur og áætlanir í málaflokkum annarra ráðuneyta þar sem þær eru til staðar, ekki síður en við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar og heims­markmið Sameinuðu þjóðanna.

Umbætur og einföldun regluverks. Áfram verður unnið að því að einfalda regluverk og gera stjórnsýsluna þjónustumiðaðri án þess að gengið sé á samfélagslega hagsmuni sem stjórnsýslu- og eftirlitsstofnunum er ætlað að verja. Með verkefninu er ætlunin að einfalda regluverk, verk­lag og ferla í þágu almennings og atvinnulífs og stuðla þannig að betri þjónustu, skilvirkari og réttlátari stjórnsýslu. Ráðuneytið og stofnanir þess framkvæma reglulega kannanir um hvað megi betur fara í regluverkinu og vinna að umbótum í kjölfarið. Þetta tengist velsældar­áherslum ríkisstjórnarinnar um betri samskipti við almenning og grósku í nýsköpun.

Stafræn þróun og upplýsingagjöf. Með breyttum áherslum í upplýsingagjöf og auknum tækifærum í stafrænni þróun er unnið að fram­setn­ingu og uppfærslu á stefnum og áætlunum ráðuneytisins, mælikvörðum og árangri þeirra í vefgátt. Styður slík upplýsingagátt við vel­sældar­áherslur ríkisstjórnarinnar um betri samskipti við almenning með bættri stafrænni þjónustu.

1 Sjá einnig lög um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta, nr. 125/2019, og lög um íslensk landshöfuðlén, nr. 54/2021.
2 Ísland ljóstengt, sjá https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/05/12/Island-ljostengt-hefur-bylt-forsendum-busetu-og-atvinnu-i-sveitum-landsins/ 
3 Directive (EU) 2022/2555 of the European Parliament and of the Council of 14 December 2022 on measures for a high common level of cybersecurity across the Union, amending Regulation (EU) No 910/2014 and Directive (EU) 2018/1972, and repealing Directive (EU) 2016/1148 (NIS 2 Directive), sjá https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A32022L2555 
4 Sjá stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/Skjol---Frettatengt/%C3%8Dsland%20lj%C3%B3stengt_sk%C3%BDrsla_vor2021.pdf 
5 Sjá fjolmidlanefnd.is/wp-content/uploads/2021/11/Hluti-3-Hatursordraeda-og-neikvaed-upplifun-af-netinu-copy.pdf 
6 Matið snýr að þeim þáttum í úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) sem varða markmið netöryggis­stefnu Íslands 2022–2037 um að byggja upp afburðahæfni og nýtingu á netöryggistækni. Sjá https://www.itu.int/en/ITU-D/Cybersecurity/Pages/global-cybersecurity-index.aspx 
7 Matið snýr að þeim þáttum í úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) sem varða markmið netöryggis­stefnu Íslands 2022–2037 um að byggja upp öruggt netumhverfi. Sjá www.itu.int/en/ITU-D/Cybersecurity/Pages/global-cybersecurity-index.aspx

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum