Hoppa yfir valmynd
11. júní 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ræða fjármála- og efnahagsráðherra við stefnuræðu forsætisráðherra 10. júní 2013

*Hið talaða orð gildir

Hæstvirtur forseti, kæru Íslendingar

Það er merkileg stund þegar þing er kemur saman í upphafi kjörtímabils. Nýir þingmenn taka sæti ásamt þeim sem hafa endurnýjað umboð sitt til að starfa í þágu almennings. Í því felst þungi starfa okkar, sem fáum notið þess heiðurs að sitja á Alþingi allra Íslendinga, að þjóna sem best við getum hagsmunum þjóðarinnar í bráð og lengd.

Í fyrsta sinn í sögunni er mynduð ríkisstjórn þar sem enginn hefur gegnt ráðherradómi áður. Öll höfum við þó reynslu af störfum á Alþingi, þekkjum löggjafarstarfið og samspil framkvæmdar- og löggjafarvaldsins. Öll berum við einnig virðingu fyrir venjum og hefðum, en það má búast við að nýju fólki fylgi nýjar áherslur. Það á líka við um stjórnarandstöðuflokkana sem annað hvort hafa valið sér nýja forystu eða eru ný öfl í pólitíkinni.

Af þeirra hálfu má strax finna vilja til að störf þingsins geti orðið undir merkjum meiri samstarfs og samstöðu en á nýloknu kjörtímabili. Það er mjög ánægjulegt og ég hlakka til að vinna með þingmönnum öllum að málum sem verða landsmönnum til heilla og framfara.

Líkt og kom fram í ræðu nýkjörins forseta Alþingis, á fyrsta fundi þingsins, þurfa breytingar í vinnubrögðum þingsins að eiga sér stað og þær þurfa að koma innan frá, frá þingmönnum sjálfum.  Aðbúnaður og aðstaða þingmanna skiptir hér einnig miklu.  Frá því að ég tók sæti á Alþingi árið 2003 hef ég haft mikinn áhuga á því að styrkja þingið og auðvelda þingmönnum að rækja skyldur sínar.  Þar er enn verk að vinna.

Góðir landsmenn.

Við ætlum að horfa fram á við. Verkin verða látin tala. 

Það skiptir okkur öllu að standa við gefin fyrirheit um að fylgja landinu inn í nýtt framfaraskeið. En um leið og við hugum að framtíðinni þurfum við að taka á aðkallandi málum sem eru forsenda þess að við getum farið af krafti í uppbyggingu.

Þetta eru mál sem varða skuldir heimilanna, uppgjör við kröfuhafa og stöðu ríkissjóðs. 

Við ætlum okkur að endurskoða skattkerfið, einfalda það og lækka skatta þar sem það getur augljóslega létt undir með einstaklingum og fyrirtækjum, orðið til þess að örva hagvöxt og fjölga störfum.

Jafnframt er mikilvægt að í fjárlagafrumvarpi ársins 2014 sjáist þess glögg merki að við ætlum okkur að stöðva hallarekstur og skuldasöfnun ríkissjóðs til þess að tryggja að afkoma hans verði aftur sjálfbær, - að við eigum fyrir fjármagnsgjöldum og lækkum þau markvisst næstu árin. 

Þótt þær tölur sem við höfum nú fengið um stöðu ríkisfjármálanna sýni verri stöðu en gert var ráð fyrir, breytir það ekki þeirri ætlan okkar að reka hér hallalausan ríkissjóð. Á yfirstandandi ári var samkvæmt fjárlögum stefnt að því að lækka hallann á ríkisrekstrinum verulega og nálgast heildarjöfnuð þegar fjárlög eru skoðuð á rekstrargrunni.

Töluverðar breytingar hafa hins vegar orðið bæði á tekju- og útgjaldahliðinni frá því fjárlög voru afgreidd.

Ákvarðanir sem teknar voru undir lok síðasta árs um aukin útgjöld byggðu á tekjum, s.s. arðgreiðslum og sölu eigna, sem eru ekki að skila sér að fullu, þar gæti vantað um 4 mia.kr.

Hagvöxtur er minni en gert var ráð fyrir og má búast við lægri tekjum vegna þess um a.m.k. 4 milljarða.

Þá er á þessu stigi útlit fyrir að ýmis umframútgjöld gætu orðið nálægt 6 mia.kr. Það verður þó tekið til skoðunar hjá ráðuneytum hvernig bregðast megi við þeirri stöðu.

Þessu til viðbótar er rétt að gera ráð fyrir þeim möguleika að gjaldfæra þurfi verulegan hluta af fyrirhugðu 13 mia.kr. framlagi ríkisins til Íbúðalánasjóðs.

Samanlagt breyta þessar forsendur myndinni í ríkisfjármálum allverulega og má, miðað við þessar forsendur, gera ráð fyrir að það stefni í sama halla og á fyrra ári eða rúmlega 30 milljarða.

Til þess að vinda ofan af þessari stöðu verður ekki nóg að leggja áherslu á varfærni í ríkisútgjöldum, heldur verður hér að skapa umhverfi sem gefur af sér meiri hagvöxt en undanfarin ár.

Vel rekinn ríkissjóður er liður í  því að byggja upp traust fjárfesta á efnahagslegri endurreisn landsins, forsenda þess að hér verði hægt að aflétta gjaldeyrishöftum án þess að stefna stöðugleika í hættu og mikilvægur þáttur í því að lækka vexti, en hátt vaxtastig vinnur gegn fjárfestingu og framkvæmdum.

Þetta eru því samrýmanleg markmið - að reka hallalausan ríkissjóð og auka hagvöxt.

Traust er í þessu samhengi mikilvægt, traust fjárfesta á umhverfinu, traust almennings á því að við munum ekki leggja frekari byrðar á heimilin í landinu og traust okkar á að einstaklingar og fyrirtæki komi með okkur í þetta verkefni.

Árangurinn veltur á endanum á dugnaði, heiðarleika og skynsemi. Við þurfum að leggja hart að okkur við uppbygginguna, við verðum að geta treyst því að allir taki þátt í henni og leggi sitt af mörkum til sameiginlegra sjóða og við verðum að horfast í augu við að við getum ekki gert allt í einu.

En, við höfum mikla trú á því að byrja strax.

Við höfum þegar lagt fram nokkur mál sem styðja við stefnu ríkisstjórnarinnar.
Hæstvirtur forsætisráðherra fór yfir hér rétt áðan þingsályktunartillögu sem verður vegvísir fyrir starf næstu mánaða hvað varðar skuldir heimilanna.

Á sviði skattamála er komið fram frumvarp um afturköllun virðisaukaskattshækkunar á ferðaþjónustu og einnig er væntanlegt frumvarp til breytingar á ýmsum skattalögum, sem miðar að lækkun eldsneytisskatta og skatta á raforku- og vatnsnotkun, svo dæmi sé tekið. Ég bind jafnframt vonir við að geta lagt fram frumvarp á sumarþingi um lægri virðisaukaskatt á barnaföt. Með þessu byrjum við að létta byrðar heimilanna og það er markmið okkar að auka ráðstöfunartekjur þeirra jafnt og þétt allt kjörtímabilið.

Góðir Íslendingar.

Sjálfstæðið er okkur mikilvægt. Til að ráða okkur sjálf og vera þjóð meðal þjóða. Slíkt sjálfstæði verður ekki einungis tryggt með lögum heldur þarf það einnig að endurspeglast í efnahagslegri getu og styrk. Sjálfstæði er nátengt frelsi og undanfarin ár höfum við þurft að búa við skert frelsi til athafna.

Gjaldeyrishöftin hvíla eins og mara á íslensku efnahagslífi. Íslensk fyrirtæki standa höllum fæti gagnvart erlendum vegna þeirra, missa af mikilvægum tækifærum vegna seigju kerfisins og innlendir fjárfestar eiga erfitt með að dreifa áhættu í fjárfestingum sínum vegna takmarkana á fjármagnsflutningum.

Meðan höftin standa erum við eins og gölluð vara í augum umheimsins. Ég hef stundum sagt að þau séu eins og blikkandi ljósaskilti yfir landinu sem á stendur: Varúð - við trúum ekki á virði gjaldmiðilsins - og það er ósanngjarnt að land sem býr yfir jafn miklum og spennandi tækifærum og Ísland skuli vera í þeirri stöðu.

Því lengur sem við búum við þetta ástand, því óeðlilegra og veikara verður hagkerfi okkar. Flækjustig eykst, hætta skapast á bólumyndun og erfiðleikar við að aflétta höftum án verulegra áhrifa á efnahagslífið magnast stig af stigi.
Ég hef þegar nefnt mikilvægi þess að ná tökum á hallarekstri ríkissjóðs, í tengslum við afléttingu gjaldeyrishafta, en fleira þarf að koma til.

Í nánustu framtíð þarf að finna lausn vegna þrotabúa fallinna banka, sama gildir um aflandskrónuvandann og loks er þörf á endurfjármögnun stórra skuldbindinga. Undirbúningur að þessum aðgerðum er hafinn og við munum setja áætlun í þessum efnum í forgang með áherslu á að ljúka þessu verkefni sem fyrst - að því gefnu að niðurstaðan sé íslenska ríkinu hagfelld og þar með þjóðinni. Tíminn verður því ekki látinn ráða för, - það er niðurstaðan sem skiptir öllu.

Hæstvirtur forseti - góðir landsmenn.

Eitt af stóru málunum er að tryggja stöðugleika og sátt um kjaramál. Það er mikilvægt að stjórnvöld, vinnuveitendur, stéttarfélög og launþegar séu samstíga og samtaka í þeim aðgerðum sem farið verður í næstu ár.

Við munum því hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir, meðal annars um lækkun tryggingagjalds og frekari lækkanir og breytingar á skattkerfinu, áður en til þeirra verður gripið.

Með því að líta heildstætt á þessi mál má vinna gegn víxlverkun launahækkana og verðbólgu. Þannig tryggjum við að kjarabætur skili sér í raun og stuðlum að friði á vinnumarkaði.

Á fyrstu dögum mínum í fjármálaráðuneytinu hef ég þegar orðið var við ríkan vilja á vinnumarkaði til þess að láta reyna á nýja nálgun, meiri langtímahugsun og traustari grunn að gerð kjarasamninga.  Markmiðið er bætt kjör á traustum forsendum.  Þetta eru jákvæð merki.

Friður og sátt eru markmið í sjálfu sér sem eiga við í víðu samhengi. Við erum svo heppin að það er miklu fleira sem sameinar okkur en sundrar og við höfum sameiginlega hagsmuni af því að byggja hér upp framsækið samfélag sem byggir á fjölbreyttu atvinnu- og menningarlífi.

Slíkt samfélag fagnar skapandi hugsun, framtakssemi og nýjungum, hefur í hávegum farsælar og rótgrónar atvinnugreinar og metur að verðleikum þær auðlindir sem því eru gefnar.

Um það snúast áform okkar um að taka upp rammaætlun, að finna sameiginlegan flöt á virkjun og verndun. Að því hefur verið látið liggja að á bak við þá fyrirætlun sé einungis erindisrekstur fyrir stóriðjusinna. Það er rangt. Markmiðið er ekki að þjóna hagsmunum eins um fram annan, heldur að ná sátt um nýtingu auðlinda sem geta skapað hér græna orku um ókomna tíð - og um verndun svæða sem við erum sammála um að ekki skulu nýtt.

Það er brýnt að höggva á hnút deilna um þessi mál. Það er skynsamlegt að leita til færustu sérfræðinga okkar um góð ráð og varanlega niðurstöðu.

Einbeitum okkur svo að framtíðinni, að því lifa saman - og lifa af landinu, í sátt við það og hvert annað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum