Hoppa yfir valmynd
15. september 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs janúar-júlí 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – júlí 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var neikvæður um 20,7 ma.kr. sem er betri staða en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 10,1 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 40,9 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 52,7 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á rúma 5,8 ma.kr. 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var á árinu 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015. Þetta hefur eingöngu áhrif á sjóðshreyfingar en ekki rekstrarstöðu ársins 2015 og hafði sambærileg jákvæð áhrif á handbært fé í lok árs 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum