Hoppa yfir valmynd
29. júní 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-apríl 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – apríl 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var jákvæður um 4,2 ma.kr. þar sem innheimtar tekjur jukust um 16,5 ma.kr. milli ára en á móti jukust greidd gjöld um tæpa 23 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 35,7 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á 6,9 ma.kr. 2014. Þetta skýrist að stærstum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var á árinu 2014 kom til greiðslu í byrjun árs 2015. Þetta hefur eingöngu áhrif á sjóðshreyfingar en ekki rekstrarstöðu ársins 2015 og hafði sambærileg jákvæð áhrif á handbært fé í lok árs 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum