Hoppa yfir valmynd
4. mars 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2014

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2014 liggur nú fyrir en í aðalatriðum gefur það upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Nokkur munur er á greiðsluuppgjöri annars vegar og uppgjöri á rekstrargrunni eins og ríkisreikningur er gerður eftir hins vegar. Hann felst einkum í því að í greiðsluuppgjöri er ekki tekið tillit til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem áfallnar eru á árinu bæði á tekju- og gjaldahlið sem hafa ekki haft áhrif á greiðslur úr ríkissjóði.

Handbært fé frá rekstri var jákvætt um tæpa 85 ma.kr. en var neikvætt um 13,9 ma.kr. á árinu 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 121,5 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 58,7 ma.kr.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum