Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2014

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins 2014 liggur nú fyrir en í aðalatriðum gefur það upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. 

Nokkur munur er á greiðsluuppgjöri annars vegar og uppgjöri á rekstrargrunni eins og ríkisreikningur er gerður eftir hins vegar. Hann felst einkum í því að í greiðsluuppgjöri er ekki tekið tillit til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem áfallnar eru á árinu bæði á tekju- og gjaldahlið sem hafa ekki haft áhrif á greiðslur úr ríkissjóði. 

Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 15,1 ma.kr. en var neikvætt um 19,2 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 50,8 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 19,4 ma.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum