Hoppa yfir valmynd
5. maí 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Betri tekjur ríkissjóðs en áætlað var

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir.

Tekjur ríkisssjóðs reyndust bæði hærri en á sama tíma í fyrra og betri en gert var ráð fyrir í áætlunum.

Tekjur reyndust 1 ma.kr. hærri en í fyrra á sama tíma og gjöldin drógust saman um 16,2 ma.kr. milli ára. Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 6,5 ma.kr.

Einnig námu innheimtar tekjur ríkissjóðs 112 ma.kr. á fyrsta fjórðungi ársins og eru það 0,9% meiri tekjur en skiluðu sér á sama tíma í fyrra.

Innheimtar tekjur voru einnig meiri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir, eða 1,2 ma.kr. meiri, og stafar það einkum af meiri innborgunum á fjármagnstekjuskatti en reiknað var með.

Nánar má lesa um greiðsluuppgjörið hér í fylgiskjali.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum