Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2010

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 72,7 ma.kr. en var neikvætt um 122,8 ma.kr. á sama tímabili 2009.

Tekjur reyndust um 44,2 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin drógust saman um 12,6 ma.kr. milli ára.

Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um rúma 105 ma.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum