Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Útgáfa ritsins Þjóðarbúskapurinn árið 2008

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 20. desember 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Á árinu 2008 verður ritið Þjóðarbúskapurinn gefið út fjórum sinnum, bæði á íslensku og ensku.

Á vetrar- og sumarmánuðum verða gefnar út endurskoðaðar þjóðhagsspár til tveggja eða þriggja ára í senn. Þessar skýrslur eru stuttar, með færri töflum í viðauka og verða einungis birtar á vef fjármálaráðuneytisins. Fleiri töflur verða þó uppfærðar á vef ráðuneytisins í tengslum við útgáfuna.

Í vetrarskýrslu verður þjóðhagsspáin uppfærð í ljósi ákvarðana Alþingis um fjárlög og fjáraukalög til viðbótar við nýjar upplýsingar um efnahagsþróun. Á vor- og haustmánuðum verða gefnar út ítarlegri spár með áherslu á framvindu efnahagslífsins til meðallangs tíma, eða fjögurra til fimm ára í senn, og ítarlegum töfluviðauka. Haustspáin er jafnframt byggð á nýjum forsendum um ríkisfjármálin sem felast í fjárlagafrumvarpinu.

Vor- og haustskýrslur eru gefnar út á prentuðu formi á íslensku og á vef fjármálaráðuneytisins á íslensku og ensku. Útgáfuáætlun fjármálaráðuneytisins fyrir ritið Þjóðarbúskapurinn er sem hér segir fyrir árið 2008:

  • 15. janúar 2008 Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2007-2009
  • 15. apríl 2008 Þjóðhagsspá fyrir árin 2008-2012
  • 24. júní 2008 Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2008-2010
  • 1. október 2008 Þjóðhagsspá fyrir árin 2008-2012

Vefritið óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Næsta vefrit kemur út 10. janúar 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum