Hoppa yfir valmynd
17. desember 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Íslenska þjóðin er ung

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 13. desember 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Mikið hefur verið fjallað um það undanfarin ár að lífslíkur íslenskra karla og kvenna séu með því besta sem gerist í heiminum.

Annað atriði varðandi aldur íslensku þjóðarinnar er ekki síður athyglisvert en það er hversu ung hún er í alþjóðlegum samanburði.

Aldursdreifing 2005

Á meðfylgjandi mynd er þjóðum nokkurra landa skipt upp í þrjá aldurshópa. Þar sést hve stórt hlutfall þjóðarinnar tilheyrir hverjum aldurshópi. Greinilegt er að Ísland er með töluvert hærra hlutfall í aldurshópnum 0-14 ára en aðrar þjóðir. Munurinn er 7,6-8,4 prósentustig, þegar Ísland er borið saman við Japan, Spán og Þýskaland. Þó eru Bandaríkin með svipað hlutfall og Ísland í þessum aldurshópi.

Í aldurshópnum 15-64 ára er Ísland með svipað hlutfall og aðrar þjóðir. Í aldurshópnum 65 ára og eldri er Ísland með lægsta hlutfall þessara þjóða, eða 11,7% þjóðarinnar. Aðeins Bandaríkin eru með svipað hlutfall. Hlutfall Íslendinga er 3,4-8,3 prósentustigum lægra en hjá öðrum samanburðarþjóðum. Mestur er munurinn við Þýskaland og Japan sem hafa 19,2% og 20% þjóðarinnar í þessum aldurshóp.

Það að íslenska þjóðin er jafn hlutfallslega ung og raun ber vitni er hagfellt frá sjónarmiði lífeyriskerfisins. Öldrun samfélagsins verður síðar á ferðinni en hjá samanburðarþjóðunum. Þá mun unga kynslóðin ganga inn í það kerfi lífeyrissparnaðar sem byggt hefur verið upp á undanförnum áratugum og geta sparað fyrir efri árum. Því er allt útlit fyrir að öldrun samfélagsins verði ekki eins fjárhagslega krefjandi og í mörgum öðrum löndum. Til dæmis er staðan mun betri en í Bandaríkjunum, sem eru með sambærilega lýðfræðilega dreifingu en uppsafnaðan halla á lífeyrisskuldbindingum, eða í Japan og Þýskalandi þar sem meðalaldur íbúanna er talsvert hærri og lífeyrissparnaður ekki til staðar í sama mæli og hér á landi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum