Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tekjuskattur lögaðila eftir atvinnugreinum

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 21. nóvember 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Tekjuskattur lögaðila fyrir árið 2006 var 42,7 milljarðar króna sem er nær fjórðungs aukning frá síðasta ári þegar hann var 34,7 milljarðar.

Á síðustu fimm árum, eða frá því að fyrirtækjaskatturinn var lækkaður úr 30% í 18%, hefur tekjuskattur lögaðila rúmlega fjórfaldast. Ef tekjuskattinum er skipt eftir atvinnugreinum kemur í ljós að fjármálaþjónusta og tengd starfsemi skilar langmestu í ríkissjóð eða sem nemur 18,2 milljörðum árið 2006. Það er gríðarleg aukning frá árinu 2003 þegar tekjurnar námu rétt rúmlega 2 milljörðum.

Tekjuskattsgreiðslur fyrirtækja í ýmissri sérhæfðri þjónustu hafa einnig aukist mikið á undanförnum árum og skiluðu greinarnar tæpum 6,3 milljörðum króna í ríkissjóð vegna afkomu á síðasta ári. Í þessum flokki ber hæst lögfræðiþjónustu, bókhald, endurskoðun, starfsemi arkitekta og verkfræðinga og skyldar greinar (atvinnugreinaflokkur 74 í ÍSAT95). Tekjuskattur lögaðila í bygginga- og mannvirkjagerð hefur einnig aukist mjög mikið og nam rúmlega 3,9 milljörðum á síðasta ári en rétt rúmum milljarði árið 2001. Í verslunargreinunum hefur tekjuaukningin ekki verið eins mikil en þær skiluðu rúmlega 4,8 milljörðum króna árið 2006.

Heildarafkoma fiskveiða hefur staðið nánast í stað á umræddu tímabili og skilaði einum milljarði í tekjuskatt vegna síðastliðins árs. Hvað aðrar atvinnugreinar varðar má helst nefna að töluverðs samdráttar gætir í tekjuskatti af síma-og fjarskiptaþjónustu, sem stafar af verri afkomu en ekki minni umsvifum. Einnig gætir nokkurs samdráttar í hótel- og veitingahúsarekstri annars vegar og matvæla- og drykkjarvöruiðnaði hins vegar. Lítils háttar aukning er í heilbrigðis- og samfélagsþjónustu og skyldum greinum.

Tekjuskattur lögaðila eftir atvinnugreinum



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum