Hoppa yfir valmynd
31. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Annar morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+

50+ verkefnisstjórn til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaðiAtvinnurekendur, stjórnendur, rannsakendur, stjórnmálamenn og áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið!

Sveigjanleg starfslok – ávinningur allra

Dagskrá

  1. Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, fjallar um rannsókn Rannsóknarsetursins á ávinningi af atvinnuþátttöku eldra fólks.
  2. Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss, fjallar um möguleika og reynslu fyrirtækjanna af að ráða eldra fólk í störf.
  3. Guðrún Stella Gissurardóttir, forstöðumaður þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum, fjallar um mentora-hugmyndina – lærimeistara-/félagsvinakerfi – og möguleika fyrirtækjanna í því sambandi.

Fundarstjóri: Gunnar Kristjánsson, formaður verkefnisstjórnar 50+

  • Hver er ávinningur fyrirtækja af atvinnuþátttöku eldra fólks?
  • Standa fyrirtæki á Íslandi fyrir sértækum aðgerðum í því skyni að halda lengur í fólk á vinnumarkaði?
  • Skiptir sveigjanleikinn máli?
  • Hvernig geta fyrirtækin nýtt mentora – lærimeistara /félagsvini- í sína þágu?

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Annar fundur af þremur verður á Grand Hóteli Reykjavík, Háteigi (salur á 4. hæð) þann 2. nóvember næstkomandi klukkan 8.30–10.00. Morgunverður verður framreiddur frá klukkan 8.00.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum