Hoppa yfir valmynd
22. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stjórnun og starfsmannamál hjá ríkisstofnunum

Morgunverðarfundur fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldinn 24. október 2007 kl. 8-10 á Grand Hótel Reykjavík.

Skráning fer fram á vef Stjórnsýslustofnunar, þátttökugjald er kr. 1.500, staðgreitt, og er morgunverður innifalinn.

Þann 24. október næstkomandi kemur út og verður kynntur fyrsti hluti skýrslu um niðurstöður könnunar meðal forstöðumanna ríkisins, sem fram fór vorið 2007. Kynntar verða niðurstöður varðandi mat forstöðumanna á fyrirkomulagi launaákvarðana, stjórnunar og starfsmannamála hjá ríkinu og samskiptum stofnana við ráðuneyti. Ennfremur verður rætt hvaða ályktanir megi draga af niðurstöðunum fyrir þróun og umbætur í íslenskri stjórnsýslu.

Á fundinum fjallar stjórnandi rannsóknarinnar Ómar H. Kristmundsson, dósent við H.Í., um viðhorf forstöðumanna til fyrirkomulags launaákvarðana og svigrúmi þeirra til starfsmannastjórnunar. Einnig fjallar Ómar um mat forstöðumanna á samskiptum við ráðuneyti og svigrúm þeirra til stjórnunar faglegra verkefna stofnana og fjárveitingar til þeirra. Hann mun að lokum ræða hugsanlegar aðgerðir af hálfu ríkisins í kjölfar þessara niðurstaðna.

Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, fjallar um hvernig niðurstöður könnunarinnar horfa við frá starfsmannaskrifstofunni og um niðurstöður úr skýrslu Ríkisendurskoðunar, um framkvæmd kjarasamninga og vörpun launa frá maí 2006.

Einnig munu tveir forstöðumenn ríkisstofnana, Margrét Friðriksdóttir skólameistari Menntaskólans í Kópavogi og Magnús Skúlason forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands bregðast við niðurstöðum viðhorfskönnunarinnar og hvernig megi vinna úr þeim.

Að loknum fyrirlestrum gefst tími til fyrirspurna og umræðna.

Fundarstjóri verður Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða.

Skýrslan sem kemur út þann 24. október næstkomandi er hluti af könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna, en fyrstu niðurstöður viðhorfskönnunar meðal 16 þúsund ríkisstarfsmanna voru birtar í apríl síðastliðnum. Með könnunni í heild og úrvinnslu hennar gefst einstakt tækifæri til leggja grunn að frekari þróun og umbótum í íslenskri stjórnsýslu.

Könnunin er samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM, en Félag forstöðumanna ríkisstofnana hefur veitt mikla aðstoð við undirbúning og framkvæmd hennar.

Nánari upplýsingar um könnunina og einstaka hluta hennar er að finna á vef fjármálaráðuneytisins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum