Hoppa yfir valmynd
25. september 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

OECD um menntamál

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 20. september 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Nýverið birtist grein í vefritinu sem fjallaði um útgjöld til menntamála á Íslandi. Þar kom fram að útgjöld ríkissjóðs til menntamála á Íslandi hafa aukist samtals um 15 milljarða eða 69% á síðustu 10 árum.

Í þessu samhengi er því áhugavert að skoða nýja skýrslu frá OECD um menntamál. Þar kemur m.a. fram að á sl. 10 árum hefur fjöldi þeirra sem ljúka háskólanámi aukist um 12% og sömuleiðis hefur fjöldi þeirra sem ljúka framhaldsskólanámi aukist um 7% innan landa OECD.

Í skýrslunni eru birtir ýmsir mælikvarðar sem tengjast útgjöldum til menntamála. Helst ber að nefna að opinber útgjöld til menntastofnana í hlutfalli við landsframleiðslu eru næsthæst á Íslandi meðal landa OECD eða 7,6% en meðaltal OECD er um 5,4%.

Skýringuna á hlutfallslega miklum útgjöldum til menntamála á Íslandi má finna í öðrum mælikvörðum í skýrslunni, t.d. eru skráðir nemendur í skólum á Íslandi hlutfallslega flestir af öllum löndum OECD eða um 31% af heildarmannfjölda. Einnig kemur fram í ýmsum mælikvörðum að útgjöld á hvern nemanda á Íslandi eru yfirleitt yfir meðaltali OECD. Þá er fjöldi nemenda í bekk og á hvern kennara minni á Íslandi en að meðaltali í OECD.

Að lokum ber að nefna að í skýrslunni kemur fram að almennt í löndum OECD sé hægt að lækka útgjöld til menntamála um allt að 30% án þess að minnka gæði og umfang kennslu ef áhrifaríkari kennsluaðferðum er beitt. Einnig er bent á að ef allir skólar í löndum OECD nýttu bolmagn sitt til hins ýtrasta þá gætu þeir aukið gæði menntunar um allt að 22% án viðbótarfjármagns.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum