Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Endurskoðuð þjóðhagsspá

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 18. janúar 2007 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sem birt var í byrjun október 2006 hefur verið endurskoðuð fyrir árin 2006-2008 með hliðsjón af framvindu efnahagsmála og breytinga á forsendum. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi.

Hagvöxtur er áætlaður 2,5% á síðastliðnu ári. Skýr merki eru um að hægt hafi á vexti þjóðarútgjalda, þ.e. neyslu og fjárfestingu, á árinu 2006. Á þessu ári er gert ráð fyrir miklum samdrætti í fjárfestingu við lok yfirstandandi stóriðjuframkvæmda og nokkrum samdrætti einkaneyslu vegna veikingar á gengi krónunnar og auknu aðhaldi í efnahagsstjórn. Þrátt fyrir tilgreindan samdrátt er áætlað að aukinn útflutningur áls segi til sín og hagvöxtur verði 2,2% árið 2007. Vegna áframhaldandi bata í utanríkisviðskiptum er spáð 3,1% hagvexti árið 2008. Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er ekki reiknað með öðrum stóriðjuframkvæmdum en þeim sem þegar hefur verið tekin ákvörðun um.

Áætlað er að viðskiptahallinn hafi verið 22,4% af landsframleiðslu árið 2006. Aukninguna frá fyrri áætlun má rekja til mun meiri halla á jöfnuði þáttatekna en áður var gert ráð fyrir. Spáð er að viðskiptahallinn dragist hratt saman í ár og á næsta ári. Áætlað er að atvinnuleysi hafi verið 1,3% af vinnuafli að meðaltali árið 2006 og aukist í 2% í ár þegar hægir á efnahagslífinu. Spáð er 3,3% atvinnuleysi á næsta ári. Verðbólga var 6,8% milli áranna 2005 og 2006. Spáð er að hún nemi 3,8% að meðaltali árið 2007. Ráðgert er að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð upp úr miðju yfirstandandi ári. Spáð er 2,3% verðbólgu árið 2008.

Aðhald í stjórn peningamála jókst mikið árið 2006. Nýjar tölur benda til að aðhald í stjórn ríkisfjármála hafi einnig aukist umtalsvert það ár. Hvort tveggja hefur áhrif til að draga úr spennu í efnahagslífinu. Vegna hægari hagvaxtar árið 2006 en áður var spáð minnkar áætluð framleiðsluspenna það ár. Sökum hóflegs hagvaxtar er gert ráð fyrir að spennan hverfi úr hagkerfinu í ár og að framvindan verði í jafnvægi árið 2008.

Helstu óvissuþættir í þjóðhagsspánni varða ástand á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum, gengi krónunnar og frekari stóriðjuframkvæmdir.

Hagvöxtur, þjóðarútgjöld og viðskiptajöfnuður sem hlutfall af VLF 1995-2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum