Hoppa yfir valmynd
18. október 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Innflutningur vinnuafls slær öll met

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 12. október 2006 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Vinnumálastofnun birti í gær skýrslu um atvinnuástand í september.

Atvinnuleysishlutfall mælist nú 1,0% og hefur ekki mælst svo lágt síðan í september 2001. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi reiknast nú 1,2% og hefur lækkað um 0,1% frá fyrra mánuði. Í september hafði atvinnuleysi dregist meira saman á höfuðborgarsvæði en á landsbyggð frá sama mánuði fyrir einu ári. Þá hafði atvinnulausum konum fækkað meira en körlum.

Nýir erlendir starfsmennÞað sem öðru fremur einkennir vinnumarkaðinn nú er látlaus innflutningur erlends vinnuafls og hefur hann aldrei mælst jafn mikill í einum mánuði og í september, eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Til samanburðar voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir allt árið 2005. Áður höfðu flestir verið skráðir árið 2000, eða um 2.300. Að einhverju leyti skýrist aukningin í ár af nýskráningu aðila sem voru áður komnir, en atvinnurekendur og stjórnkerfi hafa verið að aðlaga sig nýjum reglum um skráningu starfsfólks með erlent ríkisfang sem tóku gildi 1. maí sl.

Frá því nýjar reglur um aðgang fólks frá nýjum aðildarríkjum ESB í Austur- Evrópu (nefnd 8-ESB ríki) tóku gildi 1. maí hefur dregið mjög úr veitingu atvinnuleyfa. Í staðinn hefur fjölgað skráningum manna frá Austur-Evrópu.

Þá má geta þess að þar sem aðflutningur vinnuafls hefur verið meiri en reiknað var með er atvinnuleysishlutfall lægra en það mælist hjá Vinnumálastofnun. Af þessum sökum er viðbúið að komi til endurskoðunar á stærð vinnuaflsins til hækkunar, sem að öðru jöfnu mun leiða til lækkunar atvinnuleysishlutfallsins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum