Hoppa yfir valmynd
16. október 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný könnun um stöðu og framtíðarhorfur fyrirtækja

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 12. október 2006 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Niðurstöður nýrrar könnunar Capacent Gallup um stöðu og framtíðarhorfur stærstu fyrirtækja á Íslandi liggja nú fyrir.

Stuðst er við heildarlaunagreiðslur þegar stærstu fyrirtækin eru valin. Könnunin, sem er samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Seðlabanka Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Capacent Gallup, var framkvæmd á tímabilinu 5. til 27. september og var svarhlutfall tæp 65%. Alls tóku 258 fyrirtæki þátt í könnuninni en 399 fyrirtæki voru í úrtakinu.

Forráðamenn fyrirtækjanna telja aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar og að aðstæður hafi batnað á undanförnum mánuðum. Vísitala efnahagslífsins, þ.e. hlutfall þeirra sem telja aðstæður góðar er nú um 173 stig. Í könnun í maí 2006 var vísitalan 162 stig, sem var nokkur lækkun frá í febrúar 2006 þegar hún var 175 stig. Neikvæð áhrif óróans á fjármálamarkaði á væntingar fyrirtækja virðast því að mestu afstaðin. Forsvarsmenn fyrirtækja á landsbyggðinni telja aðstæður þar hafa batnað en mat á stöðu fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu hefur versnað lítillega þótt enn sé ástandið talið betra þar en á landsbyggðinni. Vísitala efnahagslífsins á landsbyggðinni mælist nú 167 stig en var 148 stig í febrúar síðastliðnum. Til samanburðar er vísitala efnahagslífsins á höfuðborgarsvæðinu nú 175 stig en var í febrúar 185 stig.

Vísitala efnahagslífsinsAlmennt virðist bjartsýnin vera að aukast hjá forráðamönnum fyrirtækjanna um horfur í efnahagslífinu. Vísitala efnahagslífsins fyrir sex mánuði mælist nú um 112 stig en var 86 stig í febrúar. Vísitala efnahagslífsins fyrir 12 mánuði mælist nú um 128 stig en var í febrúar aðeins 71 stig. Forráðamenn fyrirtækja eru því ekki jafn svartsýnir að jafnaði um horfur og þeir voru í fyrri mælingum. Ef borin eru saman viðhorf forráðamanna fyrirtækja í mismunandi starfsemi gætir mestrar bjartsýni hjá fyrirtækjum í verslun, samgöngum, flutningum og ferðaþjónustu og fjármála- og tryggingastarfsemi. Heldur fleiri eru svartsýnir en bjartsýnir til næstu 12 mánaða í byggingar- og veitustarfsemi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum