Hoppa yfir valmynd
6. október 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 5. október 2006 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Fyrr í þessari viku kom út ný þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Ekki hafa orðið stórvægilegar breytingar frá síðustu spá sem kom út í júní síðastliðnum. Helstu niðurstöður eru:

Bráðabirgðatölur benda til að landsframleiðslan hafi aukist umtalsvert undanfarin ár, eða 7,7% árið 2004 og 7,5% árið 2005, vegna ört vaxandi þjóðarútgjalda. Atvinnuvegafjárfesting var fyrirferðamikil en einnig jukust umsvif á fasteignamarkaði og vöxtur einkaneyslu umtalsvert. Kröftugan vöxt innlendrar eftirspurnar undanfarin ár má að hluta rekja til nýjunga á fjármálamarkaði sem voru að miklu leyti ófyrirséðar.

Þótt breytingarnar séu eflaust til góðs fyrir hagkerfið til lengri tíma litið juku þær ójafnvægi í þjóðarbúskapnum tímabundið þrátt fyrir vaxandi aðhald í hagstjórn. Ókyrrð á fjármálamarkaði snemma árs leiddi til lækkunar á gengi krónunnar og verði hlutabréfa. Merki eru um að nú sé tekið að draga úr umsvifum á fasteignamarkaði og vexti einkaneyslu. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hagvexti og hann verði 4,2% árið 2006. Spáð er miklum samdrætti í fjárfestingu þegar yfirstandandi stóriðjuframkvæmdum lýkur að mestu árið 2007, en minni samdrætti í einkaneyslu.

Kröftugur viðsnúningur í utanríkisviðskiptum vegna aukins útflutnings á áli og samdráttar í innflutningi knýr hins vegar hagvöxtinn á næstu árum, sem er spáð að verði 1,0% árið 2007 og 2,6% árið 2008. Viðskiptahallinn nam 16,1% af landsframleiðslu árið 2005 en áætlað er að hann aukist í ár og verði 18,7%. Spáð er að viðskiptahallinn dragist hratt saman og verði 10,7% af landsframleiðslu árið 2007 og 3,8% árið 2008. Lækkun á gengi krónunnar flýtir fyrir ytri aðlögun þjóðarbúsins. Atvinnuleysi hefur minnkað ört og er áætlað að það verði 1,3% af vinnuafli í ár en aukist í 2,1% árið 2007 þegar dregur saman í efnahagslífinu. Vegna endurskoðunar þjóðhagsreikninga til hækkunar er framleiðsluspenna árin 2005 og 2006 nú talin hafa verið meiri en áður var reiknað með. Búist er við að spennan muni minnka hratt á komandi misserum.

Verðbólga var 4% árið 2005 vegna mikillar hækkunar fasteignaverðs það ár. Lækkun á gengi krónunnar hefur áhrif til að verðbólgan verður 7,3% í ár. Spáð er að verðbólga verði komin á verðbólgumarkmið á seinni hluta 2007, en verði 4,5% fyrir árið í heild og 2,5% árið 2008.Helstu óvissuþættir í þjóðhagsspánni varða gengi krónunnar, frekari stóriðjuframkvæmdir og aðstæður í alþjóðlegu efnahagslífi.

Hlutdeild í hagvexti 2003-2008

Á meðfylgjandi mynd er sýnd hlutdeild þjóðarútgjalda (innlend eftirspurn) og jöfnuðar utanríkisviðskipta með vörur og þjónustu í hagvexti fram til ársins 2008. Glögglega kemur fram að hlutdeild þjóðarútgjalda er meiri en utanríkisviðskipta á árunum 2003-2006. Dæmið snýst hins vegar við á árunum 2007 og 2008 þegar hagvöxturinn er borinn uppi af utanríkisviðskiptum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum