Hoppa yfir valmynd
8. september 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Bandaríkjadalur algengasti starfrækslugjaldmiðillinn

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Samkvæmt breytingu á lögum um ársreikninga á árinu 2002 geta félög sótt um það til ársreikningaskrár að þeim verði heimilað að færa bókhald sitt og semja ársreikninga í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum ef þau telja hann starfrækslugjaldmiðil félagsins.

Starfrækslugjaldmiðillinn skal vera skráður hjá Seðlabanka Íslands eða viðskiptabanka félagsins hér á landi. Nú eru 130 félög með þessa heimild og hefur þeim fjölgað um 29 frá árinu 2004. Flest félög hafa valið bandaríkjadal, en hann er algengastur gjaldmiðla í alþjóðaviðskiptum. Skipting félaga eftir gjaldmiðlum er sýnd hér fyrir neðan.

Fjöldi félaga (1) með erlendan starfrækslugjaldmiðil

Gjaldmiðill
2004
2006
Breyting
Bandaríkjadalir
66
84
18
Evrur
25
31
6
Ensk pund
8
8
0
Aðrir gjaldmiðlar
2
7
5
Fjöldi félaga í heild
101
130
29
(1) Í árslok 2004 og ágúst 2000    

Skilyrði þau sem félag verður að uppfylla til að fá heimildina er að það sé með meginstarfsemi sína erlendis eða sé hluti erlendrar samstæðu eða eigi erlent dótturfélag sem það hefur meginviðskipti við.

Ef megin starfsemin er hér á landi verður það að hafa verulegan hluta tekna sinna frá erlendum aðilum og er þá litið til viðskipta félagsins og tengsla þeirra viðskipta við erlent viðskiptaumhverfi. Þá geta félög sem fara fram úr tilgreindum stærðarmörkum laganna til að kallast stór félög fengið þessa heimild ef erlendar skuldir þeirra eru tengdar fjárfestingu þeirra í erlendum fjárfestingarvörum.

Af félögum með erlendan starfrækslugjaldmiðil eru níu skráð í Kauphöll og skiptast starfrækslugjaldmiðlar þeirra þannig að fimm félög nota evru, tvö félög bandaríkjadal og tvö félög ensk pund.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum