Hoppa yfir valmynd
31. október 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Bein útsending á netinu

Fræðslufundur fjármálaráðuneytisins og stéttarfélaga ríkisstarfsmanna verður sendur út í beinni útsendingu á heimasíðu fjármálaráðuneytisins í dag 31. október.

Þeir sem ekki eiga þess kost að sækja fundinn af einhverri ástæðu geta fylgst með fundinum á slóðinni http://straumur.nyherji.is/fjr.asp.

Fundarstjóri mælist til þess annars vegar að fólk mæti á áður boðaða fundi á Ísafirði, Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði og hins vegar að fulltrúar í samstarfsnefndum, bæði frá vinnuveitendum og stéttarfélögum, komi saman á sinni stofnun, t. d. í fundarherbergi með tengdan skjávarpa, til þess að fylgjast með fundinum.

Hægt er að nálgast glærur fundanna á Stjornendavefur.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum