Hoppa yfir valmynd
15. maí 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Styrkur vegna lokaverkefnis 2003

Auglýsing um viðurkenningu fyrir meistaraprófsritgerð í hagfræði eða viðskiptafræði haustið 2003

Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að veita tvær viðurkenningar, að fjárhæð 250.000 krónur hvora, fyrir lokaverkefni á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði við innlendar eða erlendar menntastofnanir. Viðurkenningarnar eru fyrir verkefni sem unnin eru á skólaárinu 2002/2003. Skilyrði fyrir viðurkenningu er að viðfangsefnið sé á sviði efnahags- og ríkisfjármála á Íslandi. Sérstök dómnefnd leggur mat á þær umsóknir sem berast og ákveður viðurkenningu.

Umsóknum skal skilað til efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eða á meðfylgjandi netföng fyrir 1. október nk.

Umsóknareyðublöð er hægt að sækja á heimasíðu ráðuneytisins, www.fjr.is eða í afgreiðslu þess í Arnarhvoli. Með umsókn þarf að fylgja eintak af verkefninu. Niðurstaða um styrkveitingu verður tilkynnt þann 5. nóvember.



Nánari upplýsingar veita:
Arna Sigurðardóttir, [email protected]
Fjóla Agnarsdóttir, [email protected]


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum