Hoppa yfir valmynd
12. ágúst 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný stjórn Bankasýslu ríkisins 

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Hlutverk stofnunarinnar er að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýsluhætti og eigendastefnu ríkisins. 

Í stjórninni sitja Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður, formaður,  Hulda Dóra Styrmisdóttir, hagfræðingur, varaformaður og Sigurjón Örn Þórsson, stjórnmálafræðingur. Varamaður er Egill Tryggvason, viðskiptafræðingur. 

Hulda Dóra og Egill hafa áður setið í stjórn stofnunarinnar. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum