Hoppa yfir valmynd
17. júlí 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Standard og Poor's hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard og Poor's tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr BBB- í BBB. S&P hefur einnig hækkað einkunnina til skamms tíma úr A-3 í A-2. Horfur verða áfram stöðugar.

Í fréttatilkynningu S&P kemur fram að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsins byggist á trúverðugri aðgerðaáætlun stjórnvalda til losunar fjármagnshafta. Aðgerðirnar dragi úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðarbúsins og þrýstingi á gengi krónunnar. Það leiðir til jákvæðara viðhorfs erlendra fjárfesta til Íslands og bætir aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Einnig leiði aðgerðirnar til þess að skuldastaða Ríkissjóðs Íslands batnar verulega. Þá er gengið út frá því að andvirði þeirra tekna sem falla til ríkisins verði notað til að greiða niður ríkisskuldir en ekki eytt með neinum þeim hætti að stuðlað verði að ofhitnun hagkerfisins.

Fréttatilkynning Standard og Poor's.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum