Hoppa yfir valmynd
15. júní 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tómas Brynjólfsson skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaðar

Tómas Brynjólfsson
Tómas Brynjólfsson

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Tómas Brynjólfsson til að gegna embætti skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaðar.

Tómas er með BA gráðu í alþjóðlegum félagsvísindum frá University of Georgia, meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics.  Tómas var fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis í sendiráði Íslands í Brussel þar sem hann vann að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu með áherslu á efnahagsmál og málefni fjármálamarkaðar. Tómas var staðgengill skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála í efnahags- og viðskiptaráðuneyti frá árinu 2009 til ársins 2011 þar sem verkefni hans lutu að rannsóknum og ráðgjöf um efnahagsstefnu til ráðherra og að framfylgja efnahagsstefnu íslenskra stjórnvalda gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hann vann einnig sem sérfræðingur efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu hjá forsætisráðuneytinu við rannsóknir, skrif og ráðgjöf í efnahagsmálum sem og mótun og framkvæmd efnahagsstefnu Íslands sem unnin var í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn frá árinu 2008 til ársins 2009. Loks starfaði hann sem sérfræðingur greiningardeildar Landsbanka Íslands frá 2007 til 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum