Hoppa yfir valmynd
26. maí 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirritun FATCA samnings við Bandaríkin

FATCA samningur undirritaður
Bjarni Benediktsson og Robert C. Barber undirrituðu samninginn.

Ísland og Bandaríkin undirrituðu í dag samning um regluleg upplýsingaskipti vegna fjármálastofnana  í samræmi við svonefnd FATCA lög, sem samþykkt voru í Bandaríkjunum árið 2010. 

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, undirrituðu samninginn.   

FATCA er stytting á enska heitinu Foreign Accounts Tax Compliance Act og varðar bandarísk lög um upplýsingaskyldu erlendra fjármálastofnana vegna reikninga í eigu bandarískra aðila. 

Samkvæmt lögunum ber öllum erlendum fjármálastofnunum að senda árlega upplýsingar um tekjur og eignir bandarískra skattgreiðenda beint til bandarískra skattyfirvalda. Fallist þau ekki á að senda slíkar upplýsingar eiga þau á hættu að lagður verði 30% afdráttarskattur á tilteknar greiðslur til þeirra sem upprunnar eru í Bandaríkjunum. 

Í samningnum  felst að upplýsingaskiptin fari fram á milli skattyfirvalda í Bandaríkjunum og á Íslandi og að bæði ríkin senda nauðsynlegar upplýsingar um skattgreiðendur, bæði einstaklinga og fyrirtæki. 

„Það er ánægjulegt að samningurinn sé í höfn, en tilkoma hans léttir byrði af fjármálastofnunum með því að samskipti vegna þessara mála fari í gegnum skattyfirvöld. Það er stefna íslenskra stjórnvalda að auka regluleg upplýsingaskipti í skattamálum á alþjóðavísu og þessi samningur er skref í þá átt,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun samningsins.

„Bandaríkin fagna skuldbindingu Íslands um að efla tvíhliða samstarf okkar til að bæta alþjóðleg skattaskil. Undirritunin í dag markar mikilvægt skref fram á við í sameiginlegu átaki í baráttunni gegn skattaskjólum  sem gagnast báðum löndum. FATCA (e. Foreign Accounts Tax Compliance Act) er eitt dæmi um þau djúpu og traustu bönd sem tengja á jákvæðan hátt hagkerfi Íslands og Bandaríkjanna,” sagði Robert Barber sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum