Hoppa yfir valmynd
10. apríl 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greining á upplýsingakerfum ríkisstofnana

Koma þarf á fót sérstakri starfseiningu innan stjórnsýslunnar sem fer með yfirstjórn í upplýsingatæknimálum og markar stefnu í málaflokknum. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri greiningu á upplýsingakerfum ríkisstofnana sem Capacent vann fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið. 

Markmiðið greiningarinnar var að fá stöðumat á upplýsingatæknimálum ríkisins, sem lið í vinnu við mótun stefnu ríkisins í þessum málum.

Fram kemur í greiningu Capacent að auka þurfi gagnasamskipti milli stofnana, m.a. með samnýtingu fjárfestingar í vefþjónustu. Huga eigi að sameiginlegum rekstri upplýsingakerfa ríkisins og móta stefnu um tölvuský, sem felur í sér geymslu gagna í netþjóni. 

Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið komið á fót ráðgjafarhópi um upplýsingatæknimál sem hefur m.a. það hlutverk að vinna úr skýrslunni. Þegar í stað verður hafist handa við að skoða sameiginleg kaup ríkisins á tölvubúnaði, en það er í samræmi við nýjar áherslur í innkaupum ríkisins sem kynntar voru á dögunum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum