Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna í lánamálum ríkisins 2015-2018

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt stefnu í lánamálum ríkisins 2015 – 2018. Er þetta í fimmta sinn sem slík stefna er birt. Helstu breytingar sem orðið hafa frá síðustu útgáfu snúa að hlutfalli skulda af vergri landsframleiðslu (VLF). Markmiðið er nú að hlutfallið sé undir 60% í lok árs 2018 og til lengri tíma er stefnt að því að hlutfallið verði ekki hærra en 45% af VLF. Þá er markmið um meðallánstíma lánasafnsins hækkað í 5 ár að lágmarki og hlutfall lána ríkissjóðs sem gjaldfalla á hverju almanaksári skulu að hámarki nema 15% af VLF. Viðmiðunarreglur fyrir samsetningu lánasafns ríkissjóðs eru þrengdar þannig að þær verða 70-90% fyrir óverðtryggð lán og 15-30% fyrir verðtryggð lán. 

Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:

  • Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu.
  • Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið og lágmarki endurfjármögnunaráhættu.
  • Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
  • Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika.

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði 5 ár að lágmarki.

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli bankans og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 5459200 eða í tölvupósti [email protected].

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum